Lífið

Glæsi­höll Esterar í Pelsinum til sölu á 470 milljónir

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Húsið á sér sannarlega fáar hliðstæður hérlendis.
Húsið á sér sannarlega fáar hliðstæður hérlendis. Fasteignavefur

Ester Ólafsdóttir, sem rak verslunina Pelsinn í miðbænum í rúmlega 40 ár ásamt eiginmanni sínum Karli J. Steingrímssyni heitnum, hefur sett sannkallað glæsihýsi í Laugardalnum á sölu. Húsið er skráð 316 fermetrar og ásett verð er 470 milljónir.

Húsið sem um ræðir er að Laugarásvegi 35 og er byggt árið 1958. Sagt er að húsið sé umtalsvert stærra en opinberar tölur segja til um, það sé nær 500 fermetrum.

„Mjög veglegt og einstaklega vel staðsett einbýlishús á þremur hæðum. Hús sem á sér fáar hliðstæður hérlendis,“ segir í auglýsingunni.

Hellulagður garður er bakvið húsið sem er sagður mjög skjólríkur. Á efstu hæð hússins eru stórar svalir með miklu útsýni yfir Reykjavík, Bláfjöll, Kollafjörð og Snæfellsnes.

„Upp undir Laugarásnum

á ég eitt lítið kot

dekorera með djásnum

dæmalaust fallegt slot“

Söng Laddi í laginu „Upp undir Laugarásnum

Sjá nánar á fasteignavef Vísis.

Loftmynd af glæsihýsinu, sem er fyrir miðju. Stórt og mikið útisvæði er á hverri hæð.Fasteignavefur
Húsið er umvafið trjágróðri og Laugaráskirkja er í næsta nágrenni.Fasteignavefur
Pallurinn er stór og rúmgóður. Ætli þetta sé ekki hliðin sem snýr að garðinum.Fasteignavefur
Ábúendur virðast ekki gleyma andans rækt, en hér má finna heilagan búdda í innhverfri íhugun, og málverk af séra Guðbrandi Þorlákssyni biskup. Guðbrandur Þorláksson (1541 - 1627) þótti vera einn mesti lærdómsmaður á Íslandi, en hann stóð m.a. að umfangsmikilli prentun á guðsorðabókum þar sem Guðbrandsbiblíu bar hæst. Heilagan Búdda þarf vart að kynna fyrir Íslendingum 21. aldar.Fasteignavefur
Þetta er ekkert smá.Fasteignavefur
Fylgja blómin með í kaupbæti?Fasteignavefur
Svefnherbergi/stofa fusion-herbergi.Fasteignavefur
Sólríkar suðursvalir?Fasteignavefur
Eldhúsið lítur vel út.Fasteignavefur
Stofa með eldstæðiFasteignavefur

Sjá nánar á fasteignavef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.