Körfubolti

LeBron James slítur samningi við Lakers og Chris Paul fer til Spurs

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Lebron James og Chris Paul leggja hér á ráðin en þeir eru miklir vinir utan vallar.
Lebron James og Chris Paul leggja hér á ráðin en þeir eru miklir vinir utan vallar. Christian Petersen/Getty Images

Félagaskiptagluggi leikmanna með lausa samninga í NBA deildinni opnaði í dag og venju samkvæmt eru ýmsar sögur á sveimi.

LeBron James slítur sig lausan

Fáeinum dögum eftir að sonur hans, LeBron „Bronny“ James Jr., var valinn af Los Angeles Lakers í nýliðavalinu er greint frá því að LeBron James ætli ekki að nýta leikmannaréttinn og klára núverandi samning sinn við félagið. 

Hann vilji þó vera áfram hjá félaginu en ætli að endursemja og sé mögulega tilbúinn að taka á sig launalækkun. 

Lebron James mun að öllum líkindum uppfylla langþráðan draum og spila með syni sínum á næsta tímabili.Harry How/Getty Images

Chris Paul til San Antonio Spurs

Leikstjórnandinn Chris Paul er sagður á leið til San Antonio Spurs eftir að Golden State Warriors slepptu honum lausum. Paul er 39 ára gamall og mun hefja sitt 20. tímabil í deildinni í haust. Hann er þriðji stoðsendingahæsti leikmaður sögunnar og á leið til liðs sem þarf sárlega á reynslumiklum leikstjórnanda að halda.

Gangi hann til liðs við Spurs mun hann spila samhliða nýliða ársins, Victor Wembanyama, undir handsleiðslu Gregg Popovich sem skrifaði undir fimm ára samning í fyrra.

Chris Paul, fyrrum leikmaður Golden State Warriors, ásamt góðvini sínum Scott Foster.Christian Petersen/Getty Images

Harden áfram hjá Clippers en ekki Westbrook

Samningur James Harden er runninn út en hann er sagður ákveðinn í að endursemja við Los Angeles Clippers til næstu tveggja ára. Kawhi Leonard skrifaði einnig nýlega undir þriggja ára samning.

Paul George ákvað hins vegar að framlengja ekki við Clippers og fer til Philadelpia 76ers, þá er félagið sagt vilja losa sig við Russell Westbrook.

Stjörnuferna LA Clippers er að leysast upp.

Varamaðurinn fær 60 milljónir

Talið er að Indiana Pacers hafi boðið framherjanum Obi Toppin fjögurra ára, 60 milljón dollara samning. Liðið eltist við hann í fyrra og fékk hann frá New York Knicks í skiptum fyrir tvö annars umferðar nýliðavöl. Hann reyndist Pacers mikilvægur maður af bekknum á nýliðnu tímabili þar sem liðið fór í úrslit austurdeildarinnar.

Obi Toppin er góður varnarmaður og lék til úrslita austursins þar sem nýkrýndir NBA meistarar Boston Celtics sópuðu þeim burt.Adam Glanzman/Getty Images

Óvænt stjarna síðasta tímabils til OKC

Oklahoma City Thunder er að ganga frá samning við Isiah Hartenstein sem spilaði stóra rullu í liði New York Knicks á síðustu leiktíð. Gerir þessi öflugi miðherji þriggja ára samning upp á 87 milljónir Bandaríkjadala. Á hann að deila ábyrgðinni undir körfunni með Chet Holmgren.

Fréttin var uppfærð.


Tengdar fréttir

Paul George gerir fjögurra ára samning við Philadelphia 76ers

Hinn 34 ára gamli Paul George hefur gengið frá fjögurra ára, 212 milljón dollara samningi við Philadelphia 76ers. Hann varð samningslaus eftir tímabilið hjá Los Angeles Clippers. Einnig hefur Kelly Oubre Jr. gengið frá tveggja ára samningsframlengingu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×