Trump fullyrti sjálfur á samfélagsmiði sínum á þriðjudagskvöld að dómsmálaráðuneytið hefði veitt FBI leyfi til þess að skjóta til bana við húsleit sem alríkislögreglan gerði í Mar-a-Lago klúbbi fyrrverandi forsetans í ágúst árið 2022.
„NÚNA VITUM VIÐ FYRIR VÍST AÐ JOE BIDEN ER ALVARLEG ÓGN VIÐ LÝÐRÆÐIÐ,“ skrifað Trump í hástöfum en hann hefur sjálfur ítrekað verið sakaður um að ógna bandarísku lýðræði.
Stuðningsmenn Trump hafa endurtekið fullyrðingarnar á samfélagsmiðlum og þær hafa ratað á suma óvandaðri fjölmiðla. Framboð hans hefur gengið enn lengra í fjáröflun sinni og fullyrt í tölvupóstum að dómsmálaráðuneyti Biden hafi haft heimilt til þess að skjóta Trump sjálfan.
„Ég slapp naumlega undan dauðanum,“ sagði í titli eins slíks tölvupósts, að sögn Reuters-fréttastofunnar.
„Þið vitið að þá klæjar í fingurna að gera það óhugsandi. Joe Biden var með allt hlaðið, tilbúinn að taka mig úr leik og setja fjölskyldu mína í hættu,“ sagði í póstinum.
Útúrsnúningur á stöðluðu plaggi
Fullyrðingarnar byggjast á orðalagi í stefnuskjali um beitingu valds sem alríkislögreglan notaði við húsleitina. Í því sagði að lögreglumenn mættu aðeins bana fólki ef þeir eða aðrir væru í bráðri hættu. Skjalið var á meðal fjölda annarra sem er lagt fram í sakamáli á hendur Trump vegna leyniskjala sem hann hafði með sér úr Hvíta húsinu og alríkislögreglan lagði hald á. Trump var ekki heima þegar húsleitin var gerð.

AP-fréttastofan segir að fullyrðingar Trump og félaga sé útúrsnúningur á stöðluðu orðlagi sem sé notað í skjölum sem þessum þegar leitarheimildir eru gefnar út. Tilgangur þess sé ekki að veita lögreglu heimild til þess að drepa fólk heldur að takmarka valdbeitingu.
Merrick Garland, dómsmálaráðherra, sagði fréttamönnum í dag að sams konar stefnuskjal hefði legið að baki húsleit sem var gerð á heimili Biden í ótengdu máli sem snerist einnig um leyniskjöl.
„Þessar ásakanir eru rangar og stórhættulegar,“ sagði ráðherrann.
Þegar AP bar það undir talskonu framboðs Trump hvort að það stæði við falskar fullyrðingar sínar svaraði hún: „Þetta er viðurstyggileg tilraun til þess að verja Joe Biden sem er spilltasti forseti sögunnar og ógn við lýðræðið okkar.“

Vilja útiloka sönnungargögnin í málinu
Trump er sakaður um að hafa tekið ólöglega fjölda leynilegra skjala með ríkisleyndarmálum þegar hann yfirgaf Hvíta húsið árið 2021. Hann hefur lýst yfir sakleysi sínu og fullyrt að skjölin væru hans persónulega eign.
Lögmenn hans reyna nú að koma í veg fyrir að sönnunargögn sem fundust við húsleitina í Mar-a-Lago verði lögð fram í máli sérstaks rannsakanda dómsmálaráðuneytisins gegn honum á þeim forsendum að leitin hafi brotið gegn stjórnarskrárvörðum réttindum hans.
Hæstiréttur Bandaríkjanna ætlar að taka fyrir kröfu Trump um að hann njóti algerrar friðhelgi fyrir saksókn í krafti stöðu sinnar sem fyrrverandi forseti sem lægri dómstig höfnuðu alfarið.