Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar Elira 10. maí 2024 15:29 Nú getur þú loksins skellt þér í húðmeðferð eins og stórstjörnurnar fara í fyrir rauða dregilinn! Snyrtivöruverslunin Elira Beauty hefur opnað snyrtistofu meðfram versluninni og býður upp á andlitsmeðferðir á heimsmælikvarða með húðvörum sem hafa farið sigurför um heiminn.
Augustinus Bader andlitsmeðferð Augustinus Bader andlitsmeðferðin er vísindalega studd meðferð sem sameinar verðlaunaða húðmeðferðartækni og sérsniðið andlitsnudd til að örva endurnýjun frumna. Meðferðin hjálpar til við að bæta boðskipti frumnanna sem eykur blóðflæðið, bindur betur inn rakann, stinnir húðina, jafnar hana og endurnærir. Hún hreinsar yfirborð húðarinnar og eykur efnaskiptin, þannig þéttir hún húðina og kemur í veg fyrir að vatn tapist um húðþekjuna. Klippa: Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar Samspilið á milli formúlanna í vörunum og hreyfinganna í nuddinu bætir frumuboðskiptin og stuðla þannig að endurnýjunarferlinu. Hægt væri að hugsa um vörur frá Augustinus Bader sem verkfærakistu sem húðin nýtir það besta úr. Vörurnar leysa ýmis húðtengd vandamál á mjög áhrifaríkan hátt. Meðferðinni lýkur með afeitrandi og rakabætandi andlitsmaska sem gefur húðinni einstakan ljóma. Einnig er hægt að bæta við LED meðferð sem hjálpar til við heilbrigði húðar, dregur td. úr fínum línum, minnkar bólumyndun, dregur úr rósroða einkunnum og exemi, minnkar ör og hefur ýmis önnur húðbætandi áhrif. Hollywood-liðið notar Augustinus Bader Augustinus Bader-húðvörumerkið hefur á örfáum árum breytt leiknum í bransanum með gríðarlegri velgengni. Hollywood-liðið heldur varla vatni yfir þessum snyrtivörum sem hafa hlotið yfir 50 verðlaun en eitt af kremunum þeirra, The Rich Cream, var valið besta krem allra tíma af 300 sérfræðingum í faginu. Emily Blunt og John Krasinski skelltu sér bæði í Augustinus Bader andlitsmeðferð fyrir óskarinn. Áratuga þróun að baki húðvaranna Augustinus Bader hefur varið yfir þrjátíu árum í stofnfrumurannsóknir og í það að þróa tækni sem virkjar getu líkamans til að lækna sig sjálfur og endurnýja frumur sínar. Árið 2008 þróaði hann byltingarkennt sáragel sem læknar alvarlega húðáverka án þess að koma þurfi til skurðaðgerðar eða húðígræðslu. Það er sú byltingarkennda tækni sem veitti Augustinus innblástur að húðvörunum. Tæknin sem gerir húðvörurnar frá Augustinus Bader frábrugðnar öðrum er kölluð TFC8 en sú tækni leiðir lykil næringarefnin inn á réttan stað í húðina og styður við og býr til ákjósanlegt umhverfi fyrir frumurnar til að endurnýja sig. Kremin örva því hið náttúrulega húðendurnýjunarferli og bæta þannig húðina. Formúlan aðlagar sig að þörfum hvers og eins, dregur úr fínum línum, litabreytingum, roða, bólum og öðrum húðskemmdum sem hafa komið vegna ytri umhverfisþátta. LED ljósameðferðir auka virknina til muna LED meðferðir eru orðnar einstaklega vinsæl viðbót við andlitsböðin út í heimi og við erum einstaklega ánægðar að geta boðið upp á þessa tækni með meðferðunum okkar," segir Rakel Ósk eigandi Eliru. „LED meðferðir eru orðnar vinsæl viðbót í andlitsböðin út í heimi og við erum einstaklega ánægðar að geta boðið upp á þessa tækni með meðferðunum okkar," segir Rakel Ósk eigandi Eliru. Led ljósameðferðir er hægt að nota til að draga úr áhrifum og sýnileika ýmissa húðkvilla og vandamála. Meðferðin virkar á bólur, fínar línur og psoriasis. Einnig er hægt að nota hana til að minnka roða og draga úr einkennum rósroða. Hægt er að bóka í andlitsbað með LED meðferð en einnig er hægt að koma í LED meðferð eina og sér, eða LED meðferð með virkum maska. Til að þær skili góðum árangri þá þarf að taka meðferð 1-2 í viku í 6-8 vikur. Fagleg ráðgjöf og góð þjónusta mikilvæg Elira er í senn snyrtivöruverslun og snyrtistofa og er öllum velkomið að koma við í versluninni að fá einstaklingsbundna ráðgjöf hvað varðar húðumhirðu eða förðun. „Úrvalið af húð- og snyrtivörum er mikið í dag og aðgengi að allskonar upplýsingum er ótæmandi. Því er mikilvægt að geta fengið faglega ráðgjöf um innihald og rétta notkun húð- og förðunarvara.Hér í Eliru vinna eingöngu lærðir snyrtifræðingar og förðunarfræðingar og við bjóðum einungis upp á hágæða snyrtivörur og förðunarvörur ásamt persónulegri þjónustu,“ bætir Rakel við að lokum. Nánar á elira.is.
Heilsa Hár og förðun Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Tíska og hönnun Fleiri fréttir Minna plast og meiri tenging við upprunann hjá Nándinni í Firði Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur „Hörður Grímsson er orðinn lúxusvandamál“ Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Hræðilegir dagar í Partylandi Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Sjá meira