Gummi Kalli er rétti kosturinn sem biskup Íslands Áslaug Helga Hálfdánardóttir, Dís Gylfadóttir og Guðni Már Harðarson skrifa 1. maí 2024 17:30 Þann 2. maí á hádegi hefst ný kosning til Biskups Íslands, sem stendur til hádegis 7. maí. Prestar og djáknar tilnefndu þrjú og nú hefur valið verið skorið niður í tvö nöfn af hópi 2300 einstaklinga sem gegna trúnaðarstörfum fyrir Þjóðkirkjuna. Valið er einfalt í huga okkar, sem höfum unnið náið með Guðmundi Karli Brynjarssyni í Lindakirkju í áraraðir og notið leiðsagnar hans. Gummi Kalli lætur fólk í kringum sig vaxa og dafna og skapar því tækifæri og vinnuumhverfi til þess. Hann veitir hugmyndum vængi og gefur endurgjöf sem hjálpar til við að láta markmið nást. Gummi Kalli er í senn klassískur og framsækinn og mun án efa styrkja ímynd kirkjunnar út á við með skapandi hætti. Gummi Kalli er skemmtilegur og tekur sjálfan sig ekki of hátíðlega. Hann hefur einlægan áhuga á fólki og er fundvís á hæfileika þess og styrkleika, hann er hvetjandi og hrósar bæði frá hjartanu og að verðleikum. Hann fer ekki í manngreinarálit og gefur sér tíma fyrir fólkið sem hann mætir óháð stétt eða stöðu. Gummi Kalli er góður kennari og setur mál sitt fram þannig að auðvelt er fyrir hvern sem er að meðtaka. Hann hefur gott næmi á samtímann og hvaða leiðir eru réttar til að koma sígildum boðskap kristinnar trúar áfram og hann er hvergi banginn að prófa nýja hluti. Sjálfur er Gummi Kalli lifandi dæmi um þá umbreytingu sem trú getur haft á líf fólks og er einlægur í trú sinni og bænum. Eins og ritningin hvetur til varpar hann áhyggjum sínum á Drottinn en er líka duglegur að spegla hug sinn í okkur samstarfsfólki sínu. Hann er lausnamiðaður og finnur jafnan góðar málamiðlanir þegar ólík sjónarmið mætast. Við höfum upplifað að sjá hugmynd að prjónahópi sem gerir bænasjöl, verða að veruleika og stækka ár frá ári. Við höfum séð lagstúfa sem Áslaug Helga setti fram verða að sálmum með textum frá honum, klassíska sálma fá nýjar laglínur eftir hann. Risatónleikar hafa verið settir upp í kikjunni og plötur gefnar út fyrir hvatningu hans, enda samstarfs hans og Óskars Einarssonar einstakt. Sunnudagaskólabarnaefnið Daginn í dag ber að nefna en horft hefur verið á það vel yfir milljón sinnum samkvæmt tölum frá streymisveitum og Gummi Kalli á mikinn þátt í því. Allar messur í Lindakirkju eru nú í beinu streymi og mikið var fólki sem ekki á heimangengt fylgist engu að síður með í beinni útsendingu, eða þegar þeim hentar næstu vikurnar á eftir. Yfirmaðurinn Gummi Kalli hefur ótrúlega gott nef fyrir að þefa uppi hæfileika fólks, jafnvel hæfileika sem maður sjálf(ur) telur sig ekki endilega hafa. Hann bendir ekki bara á veginn sem á að fara, heldur gengur hann sjálfur með góðu fordæmi, smitandi áhuga og vinnusemi. Það sem við kunnum þó best að meta í samstarfi okkar Gumma Kalla er hreinskiptnin, við erum alls ekki alltaf sammála og sjáum hlutina oft frá ólíkum sjónarhornum. Stundum er tekist á á starfsmannafundum og í menningunni sem sköpuð hefur verið í Lindakirkju þá má það. Góður leiðtogi veit að það er nauðsynlegt að leyfa fólki að segja hug sinn, efasemdir, jafnt sem tiltrú og búa til umhverfi þar sem traust og hreinskiptni ríkir, það er einn af kostum Gumma Kalla og þannig verður Biskup Íslands að starfa. Góður leiðtogi sér það sem hlutverk sitt að efla fólk, hvetja það áfram og fá það til að rækta náðargjafir sínar og styrkleika málstaðnum til blessunar. Þjóðkirkjan rúmar margar raddir og blæbrigði í litrófi lífsins. Gummi Kalli mun hlusta og gefa góðum hugmyndum vængi og gefa ólíku fólki tækifæri til að stækka þær. Þess vegna er valið auðvelt í okkar huga og við vitum að Guðmundur Karl er rétti kosturinn í biskupstól. Áslaug Helga Hálfdánardóttir djákni í Lindakirkju Dís Gylfadóttir prestur í Lindakirkju Guðni Már Harðarson prestur í Lindakirkju Höfundar eru samstarfsfólk Guðmundar Karls Brynjarssonar, biskupsefnis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Biskupskjör 2024 Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Aukinn stuðningur við leigjendur í Reykjavík Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira