Viðskipti innlent

Lilja leiðir nýja markaðs- og sjálfbærnideild Sýnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lilja Kristín segist spennt fyrir nýju hlutverki.
Lilja Kristín segist spennt fyrir nýju hlutverki.

Lilja Kristín Birgisdóttir hefur verið ráðin til þess að veita nýrri deild Markaðs- og sjálfbærni hjá Sýn forstöðu og mun leiða vörumerkja uppbyggingu Vodafone, Stöðvar 2, Stöð 2 Sport, Vísis, Bylgjunnar, FM957, X977 og Já.

Lilja Kristín hefur síðastliðið ár starfað sem forstöðumaður Markaðs- samskipta og sjálfbærni hjá Vodafone en hefur víðtæka reynslu í markaðsmálum, stafrænni þróun og sjálfbærni.

Nýja deildin verður miðlæg í skipuriti Sýnar en heyrir undir Sesselíu Birgisdóttur framkvæmdastjóra Vodafone. Megin markmið deildarinnar verður að þekkja væntingar viðskiptavina, efla samskipti við uppbyggingu á sterkum vörumerkjum og nýta tæknina til að veita viðskiptavinum framúrskarandi upplifun. Einnig mun nýja deildin vera leiðandi í sjálfbærnivegferð félagsins þar sem að markmið Sýnar er að láta gott af sér leiða og vera ábyrgt fyrirtæki gagnvart umhverfi, stjórnarháttum og samfélaginu.

„Við leggjum ríka áherslu á að einfalda ákvarðanatöku og boðleiðir í rekstri Sýnar og er sameining teyma í markaðsmálum innan Sýnar liður í þeirri vegferð. Fjöldi öflugra vörumerkja eru innan samstæðu Sýnar með það að markmiði alla daga að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og stuðla að sjálfbærni í rekstri. Við teljum að nýja deildin muni efla ímynd Sýnar enn frekar ásamt því að styrkja vegferð okkar í sjálfbærni, ” segir Herdís Dröfn Fjeldsted forstjóri Sýnar.

„Ég er full tilhlökkunar að starfa með öflugu teymi sérfræðinga í markaðsmálum, fjarskiptum og fjölmiðlum með það markmið að styrkja markaðsstarf allra vörumerkja Sýnar og auka samvinnu þvert á fyrirtækið,“ segir Lilja Kristín Birgisdóttir.

Vísir er í eigu Sýnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×