Fannst látin mánuði eftir að hafa gefið yfirvöldum upp nákvæm hnit Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. apríl 2024 07:51 Systir Nenigar segist reið, ekki síst þeim sem svaraði hjá 911 en kom hnitunum ekki til skila. Lögreglan í Blythe í Kaliforníu Amanda Nenigar, 26 ára, fannst látin í eyðimörkinni skammt frá Cibola í Arizona í Bandaríkjunum í síðustu viku. Leit hafði þá staðið yfir að Nenigar í um mánuð, allt frá því að hún hafði hringt í 911 og gefið upp hnitin að staðsetningu sinni.
Fjölskylda Nenigar tilkynnti að hennar væri saknað 28. febrúar síðastliðinn en daginn áður hafði hún hringt í 911 og greint frá því að hún væri týnd í eyðimörkinni. Sá sem svaraði aðstoðaði Nenigar við að finna hnitin að staðsetningu hennar í símanum en sendi símtalið svo áfram á lögregluna í Kaliforníu. Ekkert virðist hins vegar hafa verið gert með hnitin og lögreglan í Kaliforníu leitað eftir lýsingum Nenigar. Það var ekki fyrr en rúmri viku eftir að Nenigar hringdi í 911 og að fjölskylda hennar tilkynnti að hennar væri saknað sem lögreglan í Arizona fékk símtalsupptökuna inn á sitt borð og fann bifreið Nenigar skammt frá þeim stað sem hnitin bentu á. Nenigar var þá farin af vettvangi. Lík hennar fannst, eins og fyrr segir, í síðustu viku undir tré í um það bil 24 kílómetra fjarlægð frá bifreiðinni. „Hún þurfti ekki að deyja,“ segir Marissa Nenigar, systir Amöndu, sem átti að minnsta kosti tvær dætur. Fjölskylda hennar hyggst leita réttar síns.
Bandaríkin Mest lesið Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Innlent Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Innlent Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Erlent Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Innlent Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Innlent Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Innlent Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Erlent Ekki sama manneskjan eftir hörmungarnar á Gasa Innlent Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Innlent Eggert Benedikt settur forstjóri Hafró Innlent Fleiri fréttir Brýnt að koma rafmagni aftur á kjarnorkuverið „Dimmur dagur“ í sögu Slóvakíu Völdu tveggja ára stúlku sem nýja jómfrúargyðju Höfuðpaur tælingarhóps dæmdur í þrjátíu og fimm ára fangelsi Chunk er loksins „feitasti“ björninn Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Dómari skikkar lækna til að vanda skriftina Tæplega hundrað nemenda saknað Gríðarleg öryggisgæsla í Kaupmannahöfn í aðdraganda leiðtogafundar Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Tala látinna hækkar á Filippseyjum Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Fleiri en tuttugu látnir eftir jarðskjálfta á Filippseyjum Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Aðstoðarmaður AfD-leiðtoga í fangelsi fyrir njósnir Stefnir í fyrstu ríkisstöðvunina í sjö ár Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Vilja Diddy í ellefu ára fangelsi „Við erum ekki í stríði en við búum ekki við frið“ Um þúsund manns teknir af lífi í Íran það sem af er ári Tugir drengja fastir í rústum skóla sem hrundi til grunna Leiðtogar fagna áætluninni en bíða svara frá Hamas Misstu allt samband við Internetið Erlendir miðlar fjalla um gjaldþrot Play Ísraelar samþykkja friðaráætlun Trumps Mafíósar dæmdir til dauða Öruggur um að brátt ríki friður á Gasa Freista þess að koma aðildarumsókn Úkraínu fram hjá Orbán Sjá meira