Minningarorð um Reykjavík Júlíus Viggó Ólafsson skrifar 19. febrúar 2024 07:31 Útför Reykjavíkur var haldin hátíðleg í Tjarnarbíó laugardaginn 17. febrúar. Eftirfarandi er ræða sem formaður Heimdallar flutti í athöfninni: Kæru gestir, verið innilega velkomnir í útför Reykjavíkur í Tjarnarbíó. Þessi viðburður er haldinn af Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík til minningar um ástkæru borgina okkar, sem eftir áraraðir af vanrækslu er nú látin. Við bjóðum ykkur að minnast hennar með okkur á þessari stundu og minnum jafnframt á að samveran og gleðin sigrar alltaf að endingu. Ég vil nota tækifærið og rifja upp falleg orð Jóhanns Helgasonar: Ætíð mun ég elska þig bæði ár og síð og ef þú vilt eiga mig glöð ég gjarnan bíð Lífið kemur lífið fer veldur gleði og sorg heit af ástum ein ég er í Reykjavíkurborg (Staldrað við um stund) Koma tímar koma ráð, segir máltækið Þá ég bara bíða má í Reykjavíkurborg Ó, ef ég fengi falið þér mína miklu ást oki yrði létt af mér ég þyrfti ei meira að þjást ég þyrfti ekki að líða þrá og bera út á torg mína einu sönnu ást í Reykjavíkurborg Koma tímar koma ráð segir máltækið á meðan ein ég bíða má í Reykjavíkurborg Komdu til mín komdu fljótt beðið get ég ei árin líða svo undur skjótt segðu ekki nei Hvort ástin láti bjóða sér allt og hvað sem er er nú orðin eilífleg spurn á vörum mér Einn þú hefur svarið við minni ástarsorg Löng er orðin þessi bið í Reykjavíkurborg Orð í tíma töluð. Reykjavík fæddist árið 874 og varð því næstum 1150 ára gömul. Á löngu og viðburðaríku æviskeiði hennar hefur hún skipað sér sess djúpt í hjörtum landsmanna. Við minnumst hennar eins og hún var, við munum það fallega en einnig það sem var miður. Saga hennar var saga framfara, þrautseigju, og sköpunargleði. Ímynd hennar var ávallt varlega framsett, þótt undir yfirborðinu hafi leynst erfiðleikar. Reykjavík var ekki án vandamála, ekkert okkar er það. Hún var þjökuð af óábyrgri hagstjórn, óstundvísari sorphirðu, óaðgengilegum húsnæðismarkaði, og óendanlega löngum biðlistum eftir leikskólaplássi.Reykjavík þótti alltaf mjög vænt um miðsvæðið sitt, og sótti bæði einkaþjálfun hjá Gumma Emil og hnykkingar hjá Gumma Kíró til að miðsvæðið væri í góðu ásigkomulagi. Og það verður bara að viðurkennast að Reykjavíkurborg leit vel út um miðsvæðið þegar hún dó. En það skiptir meira máli en bara miðsvæðið.Og það skiptir engu máli hvernig þú lítur út ef þú ert dauðvona. Ef þú ert með ónýtt miðtaugakerfi, krónískan niðurgang, og heilaskaða, þá deyrðu alltaf á endanum.En falleg var hún, víkin sú.Oft er talað um hina fjólubláu drauma sem útsýni hennar var, Akrafjall og Skarðsheiði.Hún var svo sannarlega falleg.Gleði alltaf gaf hún minni sál, gamla borgin tendrar ástarbál.En hvað stendur eftir kæra fólk? Og við skulum aldrei leyfa okkur að gleyma því góða sem Reykjavík gaf okkur. Perlufestin sem Davíð gaf Reykjavík þegar ástarsamband þeirra stóð sem hæst er þarna enn, og er okkur minnisvarði um það sem hægt er að gera þegar hugsjónir fá að lifa.Við Tjörnina stendur heimili Reykjavíkur enn, og þó formenn húsfélagsins þar eru einskis nýtir mun það aldrei vera tekið af Reykjavík að eitt sinn var hún stórfengleg. Eitt sinn var hún borg draumanna. Fjólublárra drauma.Borgin hefur aldrei verið eins, og þú hefur ekkert breyst. Ég hef ekkert breyst. Reykjavík er mín. Sátum hér í gær. Ástin aldrei verið nær.Það er á stundum sem þessum þar sem mikilvægt er að elska og muna hvað Reykjavík hafði að geyma. Og stundirnar sem við áttum með Reykjavík og þeim sem við elskum:“Reykjavíkurnætur minna mig ennþá á þig (Ég ætla dansa, gleyma þér og dansa) Í rauðum kjól í röð á staðnum sem við hittumst fyrst (Ég ætla dansa, gleyma þér og dansa)” - Sigga Ózk Já kæri söfnuður.Á stundum sem þessum er gott að muna það góða. Og það eru góðu stundirnar hérna inni (bent á hausinn) sem koma okkur í gegnum þær slæmu sem við eigum hérna inni (bent á hjartað). Kæru gestir við bjóðum ykkur að minnast hennar, þiggja veitingar, og hlusta á ljúfa tónlist með okkur í kvöld. Að viðburði loknum biðjum við ykkur að taka þátt í kertaathöfn til minningar um Reykjavík, síðan hvetjum við gesti til að halda út í nóttina og minnast hennar með sínum eigin hætti. Höfundur er formaður Heimdallar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Viggó Ólafsson Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar