Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi um kaup ríkisins á íbúðarhúsnæði í Grindavík á sérstökum þingfundi sem hefst klukkan hálf tvö. Þetta er langdýrasta aðgerð stjórnvalda vegna hamfaranna í Grindavík en áætlaður kostnaður er rúmir 60 milljarðar króna.
„Ríkið hefur aldrei lagst í slíkt verkefni, að minnsta kosti ekki af þessari stærðargráðu. Þetta er stórt en er auðvitað með aðkomu fjármálastofnana, eðlilega. Það er gott að það náðist þannig að það léttir á ríkissjóði,“ segir Þórdís Kolbrún.
Markmið lagasetningarinnar er að verja fjárhag og velferð íbúa í Grindavíkurbæ í ljósi óvissuástands vegna jarðhræringa með því að gefa einstaklingum í bæjarfélaginu kost á að losna undan þeirri áhættu sem fylgi eignarhaldi íbúðarhúsnæðis í bænum.
Uppkaupin ná til fasteigna í þinglýstri eigu einstaklings hinn 10. nóvember 2023 sem jafnframt var þá með skráð lögheimili í húsnæðinu. Heimilt er að víkja frá skilyrði um lögheimili ef tímabundnar aðstæður skýra að viðkomandi hafi ekki verið með skráð lögheimili í íbúðarhúsnæðinu. Margir fasteignaeigendur sem hafa leigt íbúðarhúsnæði sitt og ekki haft lögheimili í Grindavík hafa lýst áhyggjum vegna þessa ákvæðis frumvarpsins og fjölmargir gert athugasemd við það.
„Það verður ekki túlkað þröngt. Það verður litið til aðstæðna. En markmiðið er auðvitaðað ná utan um heimili fólks. Svo geta verið aðstæður sem skýra það af hverju fólk er ekki með lögheimili þar og við munum taka tillit til þeirra,“ segir fjármálaráðherra.
Í frumvarpinu sé til að mynda ekki tekið á frístundahúsum og öðru álíka. Þá verði tekið á stöðu fyrirtækja í öðru frumvarpi. Í þessu frumvarpi væri fólk og fjölskyldur tekið fram yfir önnur umsvif. Lögin taki jafnframt til íbúðarhúsnæðis í eigu dánarbúa enda hafi húsnæðið verið nýtt til heimilishalds og til kaupa á íbúðarhúsnæði í smíðum samkvæmt tilteknum skilyrðum. Eigendur húsnæðisins hafa forkaupsrétt að því innan tveggja ára frá því lögin taka gildi.
Þórdís Kolbrún segir undirbúning frumvarpsins hafa farið fram í samráðshópi með fulltrúum allra flokka og það fái því vonandi fljóta afgreiðslu í efnahags- og viðskiptanefnd. Hún reikni þó ekki með að frumvarpið verði að lögum í dag eða á morgun því nefndin þurfi eðlilega tíma til að fara yfir gögn og umsagnir.
„En ég vona að þetta þurfi ekki að taka langan tíma. Vegna þess að ég veit að fólk er mjög að bíða eftir því að þetta klárist þannig að það geti tekið ákvarðanir. Við höfum þurft að feta þann veg þar sem annars vegar er tímapressa. Hins vegar er þetta rosalega stórt verkefni sem ekki hefur verið farið í áður og það þarf að vanda til verka,“ segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir.