Hann segir Úkraínumenn einnig standa fyrir erfiðleikum varðandi hergagnaframleiðslu, mannafla og annað.
Þetta er meðal þess sem Salúsjní skrifaði sem birt var á vef CNN í dag. Greinina skrifaði herforinginn áður en fregnir bárust af því að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefði tekið þá ákvörðun að víkja honum úr starfi.
Undanfarna mánuði hafa reglulega borist fregnir af spennu milli Selenskí og Salúsjní. Hana má meðal annars rekja til misheppnaðrar gagnsóknar Úkraínumanna í Sapórisjíahéraði í fyrra og hefur Selenskí verið sagður hafa áhyggjur af vinsældum herforingjans. Þeir hafa einnig deilt opinberlega um herkvaðningu.
Sjá einnig: Sagður vilja reka Járnherforingjann
Grein Salúsjnís rímar að mörgu leyti við nýlega grein þriggja sérfræðinga sem segja Úkraínumenn og bakhjarla þeirra þurfa að fara í naflaskoðun og nota árið 2024 til uppbyggingar fyrir 2025.
Í greininni segir herforinginn þróun notkunar dróna í stríðinu í Úkraínu hafa verið undraverða. Enn sé notkun þeirra að breytast og þeir séu gífurlega mikilvægir fyrir úkraínska herinn.
Með þeim sé hægt að draga úr þeirri hættu sem hermenn standa frammi fyrir, stýra stórskotaliðsárásum af meiri nákvæmni, sinna eftirliti og gera umfangsmiklar árásir á innviði og stjórnstöðvar rússneska hersins, án rándýrra eldflauga og flugvéla.
„Frekari notkunarleiðir munu verða ljósar með tímanum, þótt óvinurinn muni auðvitað alltaf leita leiða til að verjast aðgerðum sem þessum og ná frumkvæðinu.“
Hann segir Úkraínumenn einnig þurfa að leita leiða til að bæta varnir sínar og bregðast við nýrri tækni og nýjum aðferðum Rússa.
Standa frammi fyrir samdrætti í aðstoð
Þá segir Salúsjní að Úkraínumenn þurfi að takast á við samdrátt í hernaðaraðstoð frá bakhjörlum sínum, sem sumir hverjir eigi í eigin pólitísku deilum. Þar vísar hann til deilna og lömunar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, þar sem miklar deilur um aðstoð til Úkraínu og landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó hafa átt sér stað á undanförnum mánuðum.
Framleiðsla bakhjarla Úkraínumanna á eldflaugum, flugskeytum fyrir loftvarnarkerfi og skotfæri fyrir stórskotalið annar ekki eftirspurn en Salúsjní segir að það megi ekki eingöngu rekja til umfangs átakanna í Úkraínu heldur einnig til alþjóðlegs skorts á aðföngum í sprengjur og eldsneyti fyrir eldflaugar og flugskeyti.
Salúsjní gagnrýnir einnig viðskiptaþvinganir og refsiaðgerðir gegn Rússlandi. Hann kallar aðgerðirnar aumar og segir að vegna þess geti Rússar, með aðstoð annarra ríkja, átt í umfangsmikilli hergagnaframleiðslu.
Hann segir Rússa einnig njóta forskots þegar kemur að mannafla og virðist hann gagnrýna yfirvöld í Úkraínu varðandi mannafla úkraínska hersins. Hann segir opinberar stofnanir í Úkraínu ekki geta bætt mannafla stöðu hersins án þess að grípa til óvinsælla aðgerða.
Deilur hafa átt sér stað í Úkraínu um mögulega herkvaðningu en forsvarsmenn úkraínska hersins segja þörf á um hálfri milljón nýrra hermanna til að fylla upp í raðir hersins og leysa hermenn sem hafa jafnvel barist linnulaust frá því innrásin hófst af hólmi.
Deilurnar hafa meðal annars snúist um það hvort herinn eða opinber yfirvöld séu betur til fallin að halda utan um herkvaðningu. Hún hefur hingað til verið gagnrýnd í Úkraínu, vegna spillingar og hörku.
Annað vandamál sem herinn stendur frammi fyrir að mati Salúsjnís er það að lög í landinu eru óhagstæð og einokun á markaði hergagnaframleiðslu hafi valdið flöskuhálsi í framleiðslu.
Allt það sem Salúsjní nefnir í greininni segir hann að feli í sér mikla erfiðleika sem bregðast þurfi við með umfangsmiklum breytingum. Hægt sé að framkvæma þær á fimm mánuðum og þann tíma eigi einnig að nýta til að fylla upp í raðir hersins og vopna hermenn betur, bæta þjálfun hermanna og styrkja innviði og birgðanet.