Innlent

„Leiðin­legasti maður Ís­lands­sögunnar“ unir sér vel

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Árni Guðmundsson, segir forvarnir eins og ferskvöru.
Árni Guðmundsson, segir forvarnir eins og ferskvöru. Vísir/Vilhelm

Árni Guðmundsson, forvarnarsérfræðingur, segist ánægður með að hafa verið uppnefndur leiðinlegasti maður Íslandssögunnar í kjölfar þess að hafa kært eigin áfengiskaup til lögreglu.

Þetta kom fram í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Árni segir uppnefnið draga athyglina að málstað sínum. Hann segir ungu kynslóðina eiga skilið að fá að vera í friði frá áreiti áfengisiðnaðarins, yngri kynslóðir þekki ekki bakföll í forvarnarmálum.

Vísir greindi frá því þarsíðustu helgi að Árni hefði gefið sig fram við laganna verði á Hlemmi og kært sjálfan sig fyrir kaup á rútu og svo kippu af íslenskum bjór í netsölu. Fréttin vakti mikla athygli og var Árni meðal annars uppnefndur „leiðinlegasti maður Íslandssögunnar“ á samfélagsmiðlum.

Andstæðingarnir rökþrota

„Ég held að þarna erum við komin með gott dæmi þegar þú ert í opinberri umræðu og menn eru búnir með nestið sitt og geta ekki farið í rökrænar eða heilbrigðar umræður. Þá nota menn svona stimplun,“ segir Árni í Bítinu.

Þetta eru orð sem eru notuð um þig núna?

„Já, já. Þetta er eins og að skvetta vatni á gæs. Ég er bara feginn. Þetta dregur athygli að málstaðnum. Mér er alveg sama hvað fólki finnst um mig, sérstaklega þeim sem eru þess sinnis eisn og þeir sem eru að gera svona færslur. Þannig ég uni þessum titli vel. Íslandssögunnar, ekki landsins!“

Unga kynslóðin þekki ekki slæmt ástand

Árni segist enn bíða þess að heyra í lögreglunni vegna síns máls. Nú sé liðinn hálfur mánuður. Hann segist merkja kynslóðarmun í viðhorfum til áfengis og rifjar upp skólaböll frá áttunda og níunda áratug síðustu aldar.

„Fjórtán ára krakkar. Áttatíu prósent voru dauðadrukkin og reyktu. Það koma alltaf svona bylgjur,“ segir Árni. Tekist hafi að ná niður áfengisneyslu og reykingum ungmenna.

„Við erum reyndar að missa þetta niður í púða núna, 30 prósent ungmenna nota þessa níkótínpúða, en við höfum alltaf þurft að vinna þetta svona. Svo fáum við kynslóð sem er alin upp við góð skilyrði sem heldur að það sé hið hefðbundna. Ég hef alltaf sagt að forvarnir eru ferskvara. Þú þarft alltaf að vera með þetta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×