Helena í Valstreyju þegar hún snýr aftur Sindri Sverrisson skrifar 3. janúar 2024 17:01 Helena Ósk Hálfdánardóttir tekur í spaðann á nýja þjálfaranum sínum, hinum sigursæla Pétri Péturssyni. Valur Íslandsmeistarar síðustu þriggja ára í fótbolta kvenna, Valsarar, hafa tryggt sér krafta Helenu Óskar Hálfdánardóttur næstu tvö árin. Hún kemur til félagsins frá helstu keppinautunum í Breiðabliki.
Helena, sem verður 23 ára í þessum mánuði, er öflugur leikmaður sem ólst upp hjá FH en hefur einnig spilað með Fylki og svo Breiðabliki. Hún missti hins vegar af allri síðustu leiktíð eftir að hafa slitið krossband í hné. Í 82 leikjum í efstu deild hefur hún skorað níu mörk. „Helena er gríðarlega öflugur leikmaður sem mun styrkja hópinn okkar fyrir komandi átök. Hún hefur fyrir löngu sannað sig í efstu deild hér á landi og með henni kemur kraftur og metnaður sem við viljum sjá. Við höfum misst marga leikmenn og þurfum að bæta í okkar hóp til að sækja titilinn að nýju – Helena er svo sannarlega góð viðbót,“ segir Pétur Pétursson þjálfari Vals, á Facebook-síðu félagsins. Helena er annar leikmaðurinn sem Valur semur við í vetur en Katie Cousins skrifaði undir hjá félaginu um miðjan desember. Meistararnir hafa hins vegar misst lykilmenn því Ásdís Karen Halldórsdóttir, Bryndís Arna Níelsdóttir og Þórdís Elva Ágústsdóttir eru allar farnar í atvinnumennsku.
Besta deild kvenna Valur Breiðablik Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Dagskráin í dag: Það er pílan Sport Fleiri fréttir Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings KA-fólk fær sérútgáfu af bókinni Íslensk knattspyrna í ár Mikil sorg hjá Fram-fjölskyldunni Nauðsynlegt og löngu tímabært Stefán Þór Þórðarson í þjálfarastarf hjá Skagamönnum Fyrirliði Selfoss til liðs við Þróttara Vinna að lagningu gervigrass hafin í Vesturbæ „Hef mínar pælingar sem mér finnst gaman að taka áfram“ Blikar kveðja Damir og óska honum góðs gengis í Brúnei Mist Funa komin heim Víkingar seldu Bjarka Björn til Eyja Mætti syni sínum „Ég get ekki beðið að koma aftur til Íslands“ Ef launin væru svo há hefði ég gert fimm ára samning Verður áfram í grænu næsta sumar Arnór ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Eiður Gauti skoraði tvö á Mosfellsbræðurna í fyrsta leik Opnar sig um brjálæðið á Skaganum: Fékk áfall og átti erfitt með svefn Vuk í Fram Bankastarfsmaðurinn sem fór úr 3. deild í KR „Gaman að heyra hann öskra á bakvið mann“ Þungavigtarbikarinn hefst í janúar „Heyrt margar reynslusögur“ Bræðurnir saman í Mosó og Íslandsmeistari mættur Framkvæmdastjóraskipti hjá Val Fyrsta skóflustunga tekin og KR spilar á gervigrasi Sjá meira