Með innkaupakerru á miðri akbraut og sagðist taka styðstu leið Eiður Þór Árnason skrifar 31. desember 2023 07:54 Ýmis mál komu inn á borð lögreglu. vísir/vilhelm Tilkynnt var um mann með innkaupakerru á miðri akbraut en þegar lögregla ræddi við hann kvaðst hann vera að taka stystu leið á áfangastað og að göngustígar væru ófærir. Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en maðurinn sagðist jafnframt ætla að koma sér af akbrautinni.
Margslungin mál komu að venju inn á borð lögreglu í gær og nótt og tengdust minnst tvö þeirra flugeldum. Í öðru tilvikinu var tilkynnt um fólk sem væri að henda flugeldum af svölum og sprengja þá inn á svölum. Þá barst tilkynning um ungmenni sem höfðu sprengt flugelda á bensínstöð en þau höfðu yfirgefið vettvang þegar lögregla kom á staðinn. Handtekinn í kjölfar þvagláta Einnig höfðu laganna verðir afskipti af einstaklingi sem kastaði af sér þvagi í miðborg Reykjavíkur. Var sá handtekinn en hann reyndi að kasta af sér þvagi á dyraverði skemmtistaðar og neitaði að segja til nafns eða gefa upplýsingar um hver hann væri, að sögn lögreglu. Var einstaklingurinn vistaður í fangaklefa þar til lögregla gat rætt betur við hann. Tilkynnt var um vinnuslys á ónefndu hóteli þar sem um var að ræða minniháttar meiðsli og var einstaklingur fluttur á bráðamóttöku. Þá var annar einstaklingur handtekinn vegna gruns um líkamsárás í miðborg Reykjavíkur en látinn laus að lokinni upplýsingaöflun. Einnig voru höfð afskipti af ökumönnum vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða vímuefna.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Sjá meira