Lítur sáttur um öxl eftir hátt í fjóra áratugi á flugi fyrir Gæsluna Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 28. nóvember 2023 17:43 Jakob lítur sáttur um öxl eftir 36 ára feril hjá Landhelgisgæslunni. Vísir Flugmaðurinn Jakob Ólafsson fagnar í dag 65 ára afmæli. Það eru ekki einu tímamótin í lífi hans heldur flaug hann í gær í síðasta sinn fyrir Landhelgisgæsluna, eftir að hafa starfað fyrir hana meiri hluta lífs síns. Jakob segist líta framtíðina björtum augum og á síðustu áratugi með þakklæti efst í huga.
Flugferill Jakobs byrjaði árið 1976 og hóf hann störf við flugkennslu. Síðar flaug hann fyrir Flugfélagið Erni á Ísafirði áður en leið hans lá til Landhelgisgæslunnar, árið 1987. „Ég ætlaði að verða bóndi en endaði svo í þessu,“ segir Jakob í samtali við fréttastofu. En hvernig atvikaðist það? Jakob hefur starfað hjá Landhelgisgæslunni í 36 ár.Landhelgisgæslan „Það voru nú eiginlega bara örlögin. Þegar ég tók ákvörðun um að læra þyrluflug var ég á togara út frá Vestfjörðum og þá var leitarflug um miðja nótt þar sem flugvél hafði týnst í sjó. Þar var þyrla við leit og þetta var eitthvað sem kveikti áhuga, að fara að fljúga. Ég lét verða af því, fór til Bandaríkjanna og lærði þyrluflug.“ Hvert útkall var mikið erfitt Á þessum tíma var erfitt að finna vinnu við þyrluflug hér á landi, enda hafði hvert þyrluslysið orðið á fætur öðru. Hann kláraði því líka nám á flugvél og hefur hann flogið hvoru tveggja á ferlinum, sem nú spannar 36 ár fyrir Gæsluna. Jakob fagnaði tímamótunum á Sikiley.Landhelgisgæslan „Þetta eru feykimörg útköll, bæði sjúkraflug og leitar- og björgunarflug í gegnum þennan feril. Minnisstæðast er þegar við vorum á þyrlu, sem nú er á safni á Akureyri, TF-SIF. Í samanburði við þyrlur í dag er það mjög krefjandi og hún kannski réði ekki við veður og vinda og við vorum oft að spila á ystu nöf,“ segir Jakob. „Hvert útkall var býsna mikið erfiði, sem er kannski minna í dag, menn eru með miklu öflugri tæki í höndunum með betri búnað. Maður gæti tínt fram fjölmörg eftirminnileg flug en það er best að gera ekki upp á milli þeirra. Það sem mestu máli skiptir fyrir þá sem þurftu á þjónustunni að halda er að þau gengu vel og fengu farsælan endi.“ Mikil tækniframför á ferlinum Þetta er hátt í 40 ára ferill og tækniþróunin hlýtur að hafa verið mikil á þessum tíma? „Já, mikil ósköp. Það er alveg eins og svart og hvítt. Menn tóku þetta föstum tökum og hönnuðu þylur með öryggi í fyrirrúmi. Sem betur fer hefur þetta gengið afskaplega vel. Ég fékk tækifæri til að fara úr þessari litlu þyrlu yfir í svokallaða Puma-þyrlu, TF-LÍF. Vinnan varð miklu léttari og hættuminni,“ segir Jakob. Fjölskyldan kom til Sikileyjar til að fagna starfslokunum.Landhelgisgæslan „Minni vélin kom 1985 og sú stærri 1995. Svo seinna, eftir að Ameríkaninn fór fjölgaði þyrlunum og þá flaug maður mörgum tegundum af þessu, þangað til ég færði mig alfarið yfir á flugvélina.“ Mikil reynsla í Miðjarðarhafi Eftir að flugvél Landhelgisgæslunnar var keypt flaug Jakob henni og þyrlum Gæslunnar jöfnum höndum, allt til ársins 2014 þegar hann færði sig alfarið yir á flugvélina. Hann hefur síðan þá varið miklum tíma í útlöndum, enda eru helstu verkefni flugvélarinnar að sinna leiguflugi í Miðjarðarhafi til að létta undir fjárhagsvanda Landhelgisgæslunnar. Jakob kvaddi góða félaga í gær.Landhelgisgæslan „Þetta hefur verið mikil reynsla. Við höfum verið að fljúga mikið í Miðjarðarhafinu og Afríku líka og þarna lærðum við mikið með því að vinna með öðrum þjóðum og herjum. Þetta er mikið umfang og mikil sorg þarna í Miðjarðarhafinu,“ segir Jakob. „Uppistaðan í þeim verkefnum er að leita að flóttamönnum sem leggja út á hafið í algjörlega vanbúnum fleyjum. Margir týnast í hafi. Okkar er að hafa uppi á þeim og beina björgunarliði að fólkinu. Jafnframt fylgjumst við með eiturlyfjaflutningi og öðru ólöglegu á hafinu.“ Lítur sáttur um öxl Jakob er staddur í Sikiley en síðasta flugferð hans var í gær, þegar hann lenti flugvél Gæslunnar, TF-SIF á flugvellinum í Catania. Þar var hann staddur ásamt áhöfninni við störf á Ítalíu fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins. Þær reglur gilda að flugmenn mega ekki fljúga eftir 65 ára afmælisdaginn og flaug Jakob því fram á síðasta dag. Jakob hefur starfað með fjölda manna á ferlinum. Hér má sjá aðeins brot af þeim góðu mönnum sem gengið hafa samhliða honum á ferlinum.Landhelgisgæslan „Við fórum í eftirlitsflug í gær eins og vanalega og vorum í rúma fjóra tíma, sem er svolítið styttra en venjulega. Við erum yfirleitt fimm, upp í sex tíma í flugi. Við komum að flugvellinum hér í Catania og þeir voru svo almennilegir í flugturninum að þeir leyfðu okkur að fljúga aðeins yfir flugbrautinni og leika listir okkar. Svo var góður hópur af fólki sem tók á móti mér, veitingar og faðmlög,“ segir Jakob. Hvernig líður þér að þessum kafla sé lokið? Hér má sjá Jakob á varðskipinu Óðni á fyrsta starfsárinu sínu.Guðmundur St. Valdimarsson „Mér líður bara vel með það. Maður hefur verið smátt og smátt að búa sig undir þetta en það er skrítið að vita að maður sé ekki að fara í vinnuna aftur. En ég hlakka til framtíðarinnar, nóg að sýsla,“ segir Jakob. „Ég á jörð uppi í Borgarfirði, nokkuð af hrossum og gamla bíla til að dúlla við. Það verður nóg að gera.“ Hann segir þakklæti ofarlega í huga þegar hann lítur um öxl. „Ég er búinn að vinna með alveg frábæru starfsfólki og traustum félögum sem hafa lagt allt sitt í þetta starf, svo það yrði sem árangursríkast og öruggast. Ég þakka bara fyrir samleiðina. Ég er ánægður og þakklátur fyrir að hafa átt þennan farsæla feril. Það var svo sem ekki sjálfgefið, þannig að ég prísa mig sælan.“
Landhelgisgæslan Tímamót Mest lesið Er Ormstunga djarfasta sýning ársins? Gagnrýni Klæðist því sem eykur sjálfstraustið Tíska og hönnun Kynlífssena sautján ára stúlku hafi splundrað samstarfi bræðranna Bíó og sjónvarp „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Lífið Bullandi stemning hjá Blikum Lífið Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Lífið samstarf Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Lífið Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Lífið Líf og fjör í loðnu málverkunum Menning Fleiri fréttir „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Fréttatían: Pólitíkin, flug og söngleikir Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Ragga Theó fann ástina hjá Davíð Þór Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Stjörnulífið: Fáklædd í fimbulkulda Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum „Er eðlilegt að kynlíf taki af mér stjórn og að ég sé upptekinn af kynlífi flesta daga?“ Gisti þar sem Verdi andaðist fyrir hreina tilviljun Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vettvangur harmleiks Gæti vaknað einn daginn og ætlað á þing Kannast ekki við að vera genginn til liðs við Samfylkinguna „Sílíkon er eitthvað sem mun fara með mér í gröfina“ Sjá meira
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“