Ljóst að barnungar stúlkur hafi hitt meintan barnaníðing Jón Þór Stefánsson skrifar 22. nóvember 2023 23:40 Önnur stúlkan hefur lýst því að maðurinn hafi farið í hraðbanka á Suðurlandsbraut til að greiða henni fyrir kynferðislegan greiða. Maðurinn kannast við að hafa farið í hraðbankann en segist hafa gert það einn síns liðs. Vísir/Vilhelm Maður sem er grunaður um að nauðga tveimur barnungum stúlkum og greiða þeim fyrir er sagður hafa komið sér í samband við þær í gegnum samfélagsmiðilinn Snapchat. Önnur stúlknanna hafi ætlað sér að kaupa áfengi af manninum, en hann boðið að henni að greiða fyrir það með kynferðislegum greiðum. Stúlkurnar eru sagðar búa yfir upplýsingum um manninn sem bendi til þess að þær hafi hitt hann.
Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði á hendur manninum, en í gær fjallaði Vísir um að maðurinn hefði verið ákærður fyrir kynferðisbrot í garð stúlknanna, sem og önnur brot líkt og kaup á vendi og vörslu barnaníðsefnis. Næstum því öll brotin sem maðurinn er ákærður fyrir áttu sér stað í júlí á þessu ári, en bent er á að þau geta varðað allt að sextán ára fangelsi. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn sem um ræðir varpar frekara ljósi á meint brot mannsins. Líkt og áður segir komst maðurinn í kynni við stúlkurnar í gegnum Snapchat. Önnur þeirra lýsir því að hún hafi hitt manninn bíl hans og þau farið í sleik og fyrir það hafi hann gefið henni tíu þúsund krónur og vodka-flösku í staðinn Þau hafi hitt hvort annað aftur og þá hafi hann greitt henni 70 þúsund krónur fyrir munnmök. Hún hafi viljað hætta við eftir að munnmökin hófust en maðurinn þá viljað stunda samræði viða hana og lofað 150 þúsund krónum í staðinn og það gengið eftir. Stúlkan greindi frá því að vinkona hennar hafi einnig hitt manninn. Það er hin stúlkan sem málið varðar. Sú sagðist hafa hitt manninn í þrjú skipti þar sem hann hafi haft við hana samræði og greitt henni 50 þúsund fyrir í hvert skipti. Tvisvar hafi hann sótt hana og farið heim til hans, en í þriðja skiptið verið í bílnum. Fram kemur að önnur stúlknanna hafi vitað bílnúmerið á bíl mannsins þar sem hún hafi skrifað það niður í símann sinn. Ekki nokkur leið að vita nema þær hafi verið viðstaddar Í úrskurðinum segir að ljóst sé að stúlkurnar búi yfir upplýsingum um manninn sem ekki væri nokkur leið fyrir þær að vita nema þær hafi verið á staðnum. Til að mynda gat önnur þeirra lýst heimili mannsins í smáatriðum. Þá sýnir myndefni úr öryggismyndavélum stúlkunnar í aftursætum bíls mannsins, líkt og þær höfðu lýst. Þá fundust erfðaefni úr manninum og stúlkunum tveimur í bíl mannsins. Málið hefur verið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur.Vísir/Vilhelm Neitar sök og neitar að tjá sig Fram kemur í úrskurðinum að maðurinn hafi verið yfirheyrður vegna málsins fimm sinnum og þar hafi hann ýmist neitað sök eða ekki viljað tjá sig. Hann játaði að vera með notendanafnið á Snapchat sem stúlkurnar töluðu um, en sagðist ekki hafa hitt aðra stúlkuna, en mögulega talað við hana á samfélagsmiðlinum. Hina stúlkuna sagðist hann hafa hitt einu sinni, en sagði það einungis til að kaupa handa henni áfengi. Þá kemur fram að hann játi að hafa farið í hraðbanka á Suðurlandsbraut, líkt og stúlkan lýsti, en hann vildi meina að hann hafi verið einn. Aðspurður um hvað hann hafi verið að gera einn tiltekið kvöld, en það kvöld vildi önnur stúlkan meina að hún hafi hitt manninn, kvaðst hann hafa keypt vændi af konu í Grafarvogi. Sú kona kannaðist við að hafa selt honum vændi, en tók fram að það hafi verið annað kvöld. Brotin „sérstaklega gróf“ „Eru meint brot hans sérstaklega gróf, ekki einungis vegna þess að þau snúa að afar grófri og ítrekaðri háttsemi hans í garð brotaþolanna tveggja, heldur beinast brot hans gegn börnum í mjög viðkvæmri stöðu,“ er haft óbeint eftir héraðssaksóknara í úrskurðinum. Þar er viðkvæm staða stúlknanna útskýrð þannig að þær séu báðar mjög ungar að aldri, og byrjaðar að neyta áfengis og annara vímuefna. „Og voru þær tilbúnar að selja líkama sinn til miklu eldri karlmanns í því skyni að fjármagna neyslu sína.“ Líkt og áður segir er maðurinn grunaður um önnur frekari brot. Honum er gefið að sök að greiða þremur einstaklingum fyrir vændi. Vændiskaupin sjálf eiga að hafa verið níu talsins. Þá er hann einnig ákærður fyrir kynferðisbrot með því hafa í vörslum sínum Samsung-síma og Apple-fartölvu þar sem fundust samtals 763 ljósmyndir og 98 hreyfimyndir sem sýna börn á kynferðislegan hátt.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira