Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur var búsett í Jerúsalem um nokkurt skeið. Hún segir ljóst að flest ríki heims vilji ekki að ástandið teygi anga sína víðar.
„[Ísraelar] eru náttúrulega að gera það sem þeir segjast hafa ætlað að gera. Þeir eru að sýna Hamas í tvo heimana og eru búnir að reyna að minnsta kosti að rýma svæði þannig að þetta sé mannúðlegur hernaður eins og þeir kalla það. Þrátt fyrir það að það eru óbreyttir borgarar sem falla. Þetta auðvitað hefur áhrif. Það er ljóst að flestir vilji ekki að þetta fari úr böndunum. “
Ástandið ekki leyst með hernaði
Bandaríkjamenn séu til að mynda búnir að senda flugmóðurskip til Ísrael. Þá hafi Netanjahú forsætisráðherra Ísraels sagt að Hamas væru ekki til sem samtök ef Íran hefði ekki stutt við bakið á þeim.
„Það er búið að senda skilaboð. En það sem er á sama tíma að gerast er að svona ástand er ekki leyst með hernaði, það er nokkuð ljóst. Þar af leiðandi, og líka þegar þú ferð inn með þessum landhernaði og þessum mikla hernaði, þá réttlætir það frekari árásir þeirra sem standa með Hamas,“ segir Magnea og tekur Hezbollah-samtökin sem dæmi.
Hún segir að þjóðarleiðtogar hafi reynt að leggja sitt af mörkum, til að mynda utanríkisráðherra Spánar, sem boðist hefur til að halda friðarviðræður. Ástandið hafi áhrif á samskipti fjölmargra ríkja, og þá megi nefna framtíðarviðræður Bandaríkjanna við Sádí-Arabíu, hvaða skilaboð verði send til Íran og svo áfram mætti halda.
„Þetta er náttúrulega fylgispekt“
Hún telur að afstaða Íslendinga skipti máli, en Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um ályktun sem tekin var fyrir á þingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa í gærkvöldi.
„Vissulega hefur Ísland mikið að segja. Ég tek undir það að Ísland hafi alveg getað samþykkt þessa ályktun, þar sem þeir ákváðu að sitja hjá. Þeir geta í raun og veru staðið með mannúð hundrað prósent. Þeir eru búnir að fordæma hryðjuverk Hamas. Ef þeir hefðu viljað ítreka það þá hefðu þeir gert það í ræðu og það hefði farið í skjalasafnið hjá Sameinuðu þjóðunum; að Íslendingar hefðu ítrekað það. En þetta er náttúrulega fylgispekt, og meðal annars við Bandaríkin.“