Skoðun

Hrikalega sýnileg

Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar

Fyrsti vetrardagur er handan við hornið og Hrekkjavaka á næsta leiti. Þessi keltneski siður sem hefur náð hvað mestri fótfestu í Bandaríkjunum og síðar dreift úr sér til annarra landa er kvöldið eða vakan fyrir allraheilagramessu, 31. október. Þá klæðast ungir sem aldnir skelfilegum búningum, ganga um borg og bý og sækja sér sælgæti. Mikilvægt er að gæta sín í ljósaskiptunum og þá ekki einungis á skrímslum og furðuverum heldur ekki síður í umferðinni. Endurskinsmerki eru einfaldur en áhrifaríkur öryggisbúnaður sem tilvalið er að hengja á sig áður en haldið er út í myrkrið.

Fimm sinnum öruggari

Óvarðir vegfarendur, gangandi og hjólandi, sjást illa í myrkrinu þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós. Vitað er að ökumenn sjá óvarða vegfarendur með endurskin fimm sinnum fyrr en ella og því klárt mál að notkun endurskinsmerkja getur komið í veg fyrir alvarleg slys. Allir ættu því að nota endurskinsmerki þegar rökkva tekur, bæði börn og fullorðnir. Nú tekur við dimmasti tími ársins og þá er mikilvægt að hafa endurskinsmerki til taks. Hægt er meðal annars að nálgast endurskinsmerki hjá tryggingafélögum, í verslunum og hjá ýmsum félagasamtökum.

Hvar er best að koma endurskinsmerkjum fyrir?

Endurskinsmerki þurfa að vera vel sýnileg og gott er að hafa þau til dæmis fremst á ermum, hangandi meðfram hliðum, á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum. Einnig er hægt að setja endurskinsmerki á bakpoka eða tösku. Hægt er að fá ýmiss konar klæðnað með endurskini svo sem húfur, vettlinga og annan fatnað. Endurskinsmerki eru til í fjölbreyttu formi, bæði smellumerki og merki sem næla má í flíkur og víðar. Endurskinsvesti eru líka gagnleg þegar ætlunin er að vera vel sýnileg, til dæmis á hlaupum eða göngu. Endurskin virka eins og blikkljós þegar ljós skín á þau. Því fyrr sem ökumenn sjá óvarða vegfarendur því minni líkur eru á slysi. Forvarnagildi endurskinsmerkja er því óumdeilt og efla þau öryggi vegfarenda til muna.

Vel merktir faraskjótar

Færst hefur í vöxt að börn og fullorðnir ferðist um á hjólum, rafmagnshjólum, rafhlaupahjólum og léttum bifhjólum. Ákveðnar reglur eru um ljós og endurskin á þessum hjólum og mikilvægt að kynna sér þær vel. Reiðhjól skal búið rauðu þríhliða glitmerki og gul eða hvít glitmerki skulu vera í teinum hjólsins. Einnig á að vera ljósker að framan sem lýsir hvítu eða gulu ljósi og ljósker að aftan sem lýsir rauðu ljósi ef reiðhjól er notað í myrkri eða skertu skyggni. Rafhlaupahjól þurfa að hafa öflugt ljós að framan og rautt að aftan. Kveikja þarf á ljósum þegar dimmir og einnig þarf að vera endurskin á hjólinu, bæði að framan og aftan. Ljós skulu alltaf vera kveikt þegar ekið er á bifhjóli. Ljós og endurskin, bæði á hjóli og hjólreiðamanni auka sýnileika og öryggi til muna og því nauðsynlegt að huga að því að þessi öryggisbúnaður sé í lagi.

Sjáumst í skammdeginu

Árstíðaskiptin fela alltaf í sér ákveðna stemningu og um að gera að njóta þess að gera sér dagamun á hræðilegri hrekkjavöku og öðrum vetrarhátíðum. En gætum þess að huga að öryggi okkar og annarra þegar farið er á stjá svo allir skili sér heilir heim. Verum sýnileg og ökum löglega og af varkárni.

Höfundur er verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×