Engin skylda að greiða laun í kvennaverkfalli Árni Sæberg skrifar 20. október 2023 13:50 Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA, og Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA. Vísir/Vilhelm/SA Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins segja eðlilegt að atvinnurekendur spyrji sig af hverju það er sjálfstætt markmið skipuleggjenda kvennaverkfalls á þriðjudag að valda atvinnulífinu sem mestu tjóni. Þá hvíli engin skylda á atvinnurekendum að greiða laun í fjarvistum vegna verkfallsins.
Þetta segir í grein þeirra Sigríðar Margrétar Oddsdóttur, framkvæmdastjóra SA, og Ragnars Árnasonar, forstöðumanns vinnumarkaðssviðs SA, á vef samtakanna. Þar segir að atvinnulífið styðji baráttuna gegn mismunun og ofbeldi og mikilvægi þess að stöðugt sé minnt á skyldur atvinnulífsins og allra í samfélaginu. Atvinnulífið beri ótvíræðan hag af því að allt starfsfólk fái notið eigin verðleika og hafi jöfn tækifæri til launa, starfa og starfsþróunar óháð kynferði. „Boðað hefur verið til heils dags verkfalls kvenna og kvára 24. október næstkomandi til að mótmæla kynbundnu ofbeldi og mati á virði kvennastarfa. Haft hefur verið eftir formanni BSRB að tilgangurinn með verkfallinu sé „að valda usla“. Fyrirtækin, sem leggja í sinni starfsemi áherslu á jafnrétti og jafnræði, og vilja greiða leið þeirra sem vilja taka þátt í dagskrá kvennafrídagsins spyrja eðlilega af hverju það er sjálfstætt markmið skipuleggjenda að valda atvinnulífinu sem mestu tjóni þennan dag.“ Margt áunnist frá fyrsta kvennafrídeginum Þau segja margt hafa áunnist frá kvennafrídeginum árið 1975. Ísland hafi verið í efsta sæti á lista Alþjóðaefnahagsráðsins yfir jafnrétti kynjanna fjórtán ár í röð. Listinn byggi á niðurstöðum skýrslunnar „Global Gender Gap Report 2023“. Þar sé borin saman staða jafnréttismála í 146 löndum þegar kemur að stjórnmálum, atvinnu, menntun og heilbrigði. Leiðréttur launamunur kynjanna hafi verið 4,1 prósent árið 2020, líkt og fram kemur í greinargerð Hagstofunnar sem kom út haustið 2021. Kynbundin skipting í störf og atvinnugreinar skýri að miklu leyti þann launamun sem enn er til staðar. Leiðréttur launamunur hafi lækkað úr 6,4 prósent í 4,1 prósent milli áranna 2008 og 2020. Óleiðréttur launamunur kynjanna hafi lækkað á árunum 2008-2022 úr 20,5 prósent í 9,1 prósent. Hagstofan reikni þá meðaltímakaup karla annars vegar og kvenna hins vegar og mismunurinn telst vera óleiðréttur launamunur. Hluti þessa launamunar liggi í því að karlar vinna mun meiri yfirvinnu en konur, sem hækki meðaltímakaup þeirra. Minna yfirvinnuálag í nafni jafnaðar Þar segja þau Sigríður Margrét og Ragnar að atvinnurekendur geti lagt lóð sín á vogarskálarnar til þess að rétta hlut kynjanna. Það sé sjálfsagt að umbunað sé sértaklega fyrir yfirvinnu, en hlutfall yfirvinnugreiðslna á almennum vinnumarkaði í heildarlaunum hafi numið 18 prósent á Íslandi árið 2017 en á sama tímabili verið 2 til 6 prósent í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. „Til þess að stíga skref í átt að launajöfnuði er nauðsynlegt að draga úr vægi yfirvinnugreiðslna í heildarlaunum. Það mun koma konum á vinnumarkaði sérstaklega til góða. Til að ná því markmiði er óhjákvæmilegt að endurskoða álagstímabil og álagsgreiðslur kjarasamninga fyrir vinnu utan dagvinnutímabils. Samtök atvinnulífsins eru tilbúin að taka þátt í samtali allra aðila á vinnumarkaði, almennra og opinberra atvinnurekenda og stéttarfélaga, til að vinna að því markmiði.“ Konur og kvár ræði við yfirmenn sína með nægum fyrirvara Í lok greinar segja þau að vegna mótmæla á kvennafrídaginn sé mikilvægt að konur og kvár, sem hyggjast taka þátt, óski með góðum fyrirvara eftir samtali við sinn atvinnurekanda um með hvaða hætti best sé að koma við fjarvistum þennan dag ef þess er nokkur kostur. Aðstæður í fyrirtækjum séu jafn misjafnar og þau eru mörg. „Engin skylda hvílir á atvinnurekendum sem ákveða umfram skyldu að veita leyfi frá störfum að greiða laun í fjarvistum sem þessum.“
Kvennaverkfall Jafnréttismál Vinnumarkaður Kjaramál Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira