Lífið

Sigga Toll og Anton Björn fögnuðu ástinni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Anton Björn og Sigríður fögnuðu ástinni um helgina.
Anton Björn og Sigríður fögnuðu ástinni um helgina.

Sigríður Thorlacius söngkona og Anton Björn Markússon fögnuðu ástinni um helgina þegar systir Sigríðar gekk í hjónaband.

Sigríður og Anton Björn voru á meðal gesta í brúðkaupi Ásdísar Thorlacius Óladóttur leikskólakennari og Ingvars Eysteinssonar sálfræðings. Sigríður birti fallega mynd af þeim Antoni Birni í veislunni.

Glæsileg í brúðkaupi systur Siggu.Instagram/skjáskot

Sigríður deildi fallegri mynd af nýbökuðum hjónum á Instagram og undir hljómar Ástin og lífið eftir þá Magnús Þór Sigmundsson og Jóhann Helgason.

Sigríður og Anton Björn hafa verið í sambandi um nokkurn tíma. Sigríður er landsmönnum kunn fyrir sinn fagra söng. Anton Björn er lögmaður hjá Altus lögmönnum og gat sér gott orð sem knattspyrnumaður á árum áður. Framarar munu seint gleyma sigurmarki hans gegn Víkingi haustið 1999 þegar Framarar björguðu sér naumlega frá falli.

Hann er sonur Markúsar Arnar Antonssonar fyrrverandi borgar- og útvarpsstjóra.

Sigríður og Anton Björn eiga einn dreng saman, fæddan í september 2021.


Tengdar fréttir

Þetta eru mest sjarmerandi Íslendingarnir

Hvort sem það er fallegt bros, einlægni, sjálfsöryggi eða blik í auga þá er víst engin uppskrift af sjarma. Einnig er það misjafnt hvað fólki finnst vera sjarmerandi þó svo að oft séu það vissar manneskjur sem hafa eitthvað sérstakt við sig sem virðist heilla og ná til flestra. 

Frægir fjölguðu sér árið 2021

Það er ávallt mikið gleðiefni þegar börn koma í heiminn. Lífið hefur greint reglulega frá því þegar þekktir einstaklingar eignast börn. Hér að neðan má sjá yfirferð yfir nokkur kríli sem komu í heiminn á árinu 2021 og Vísir greindi frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.