Innlent

Ná­grannar kvörtuðu undan lykt sem barst frá geymslunni

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Frá Sóltúni 20 nú í morgunsárið.
Frá Sóltúni 20 nú í morgunsárið. vísir/vilhelm

Matvælageymslan þar sem mörg tonn af matvælum sem geymd voru við óheilnæmar aðstæður fundust í síðustu viku var til húsa í Sóltúni 20. Aðrir sem höfðu afnot af umræddu húsnæði kvörtuðu undan lykt sem barst frá geymslunni.

Þetta hefur Morgunblaðið eftir heimildum.

Sigtún 20.Vísir/Vilhelm

Matvælunum var fargað í síðustu viku eftir töluvert umfangsmiklar aðgerðir af hálfu heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Samkvæmt Morgunblaðinu eru margir aðilar með aðstöðu í umræddu húsnæði en í flestum tilvikum er um leigjendur að ræða.

Alls konar rusl er að finna við húsnæðið.Vísir/Vilhelm

Að sögn Óskars Ísfeld Sigurðssonar, deildarstjóra matvælaeftirlits heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, hafði fyrirtæki umrædda geymslu á leigu. Rannsókn á málinu stendur yfir og verður meðal annars lagt mat á það hvort vísa beri málinu til lögreglu.

Frá Sóltúni 20 nú í morgunsárið.vísir/vilhelm

Ekki er vitað hvort matvælin voru seld til verslana eða veitingastaða.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×