Innlent

Himinn og haf á milli hegðunar íslenskra foreldra og sænskra

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Einar var í þjálfarateymi Víkings þegar Víkingur vann FH í úrslitaleik Mjólkurbikars karla á Laugardalsvelli árið 2019.
Einar var í þjálfarateymi Víkings þegar Víkingur vann FH í úrslitaleik Mjólkurbikars karla á Laugardalsvelli árið 2019. Vísir/Vilhelm

Íslenskur þjálfari segir tvennt ólíkt að fylgjast með foreldrahegðun á fótboltamótum á Íslandi og í Svíþjóð. Sænsku foreldrarnir hegði sér töluvert betur á hliðarlínunni en þar í landi séu upplýsingaskilti við hvern einasta völl þar sem minnt er á hvað sé æskileg hegðun þegar börn keppa.

Foreldrahegðun á íþróttamótum barna hér á landi var til umræðu í þættinum Hliðarlínunni sem sýndur var á Stöð 2 og Stöð 2 Sport í gærkvöldi. Foreldrar veigra sér ekki við að láta í sér heyra og kalla oft á börnin.

Einar Guðnason hefur áralanga reynslu af knattspyrnuþjálfun barna en hann hefur þjálfað bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Hann er núna búsettur í Örebro.

Einar var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann ræddi muninn á hegðun foreldra á íþróttamótum í Svíþjóð og á Íslandi. Einar segir sænsku foreldrana mun rólegri en þá íslensku.

„Þegar kemur að leikdegi hjá börnum þá haga þeir sér töluvert betur svona á hliðarlínunni. Þá er ég aðallega að tala um foreldrana. Því að það skiptir í rauninni ekki máli hvað er dæmt og hversu rangt það er, það segir enginn orð. Það sitja bara allir á tjaldstólum eða á piknikteppi og klappa bara eins og í leikhúsi sama hvað gengur á.“

Hann hafi rætt þennan mun við aðra þjálfara í Svíþjóð og fengið þær upplýsingar að þetta hafi ekki alltaf verið svona. Hann hafi þó ekki fengið skýringar á því hvað Svíar hafi nákvæmlega gert til að breyta menningunni í kringum íþróttamótin. Hann segir þó reynt eftir fremsta megni að minna foreldra í Svíþjóð á að hegða sér vel.

„Við hvern einasta völl sem þú kemur á er svona upplýsingaskilti þar sem er sagt bara þú ert að horfa á börn spila fótbolta. Látið dómarann vera og svona allskonar minnispunktar.“

Fram kom í þættinum í gær að þrettán ára strákur var sagður vera íþróttafélagi sínu til skammar þegar hann dæmdi leik sex ára barna á fótboltamóti. Þá eru dæmi foreldrar hafi veist að ungmennum sem hafa verið að dæma fótboltaleiki barna.

Brot úr fyrsta þætti Hliðarlínunnar má sjá að neðan. 

Einar segir dómarana oft á tíðum unga líka í Svíþjóð en þar detti engum í hug að öskra á þá.

„Á Íslandi þegar maður hefur séð fjórtán fimmtán ára krakka dæma þá eru kannski einhverjir fullorðnir einstaklingar að láta þá heyra það sem er fáránlegt.“

Þá þurfi oft lítið til að mikill æsingur myndist í foreldrahópnum.

„Það þarf oft bara einhvern einn eða tvo til þess að byrja æsinginn til þess að hinir sogist inn í það.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×