Erlent

Fundu vel varðveitt rómversk sverð í helli

Samúel Karl Ólason skrifar
Sverðin þykja merkilega vel varðveitt eftir um 1.900 ár í helli.
Sverðin þykja merkilega vel varðveitt eftir um 1.900 ár í helli. AP/Ohad Zwigenberg

Fornleifafræðinar í Ísrael tilkynntu í gær að fjögur 1.900 ára gömul rómversk sverð hefðu fundist í helli nærri Dauðahafinu. Sverðin þykja merkilega vel varðveitt eftir veruna í hellinum en auk þeirra fannst spjótsoddur, sem Rómverjar kölluðu pilum.

Munirnir fundust fyrir tveimur mánuðum síðan en fornleifafræðingar telja að vopnunum hafi verið komið fyrir í hellinum af uppreisnarmönnum gegn Rómarveldi á fjórða tug annarrar aldar. Þá gerðu gyðingar í Ísrael uppreisn gegn Rómarveldi.

Þetta byggir á hvernig sverðin líta út en hin rómversku sverð, sem kallast Gladius, tóku miklum breytingum í gegnum árin. Sverðin hafa ekki verið send í aldursgreiningu enn.

Fornleifafræðingar hafa lengi fundið mikið magn vel varðveittra fornminja í hellum nærri Dauðahafinu, þar sem kuldinn, þurrkur og stöðugt andrúmsloft hefur varðveitt lífræn efni vel í gegnum aldirnar. Í frétt AP fréttaveitunnar er vísað til að Dauðahafshandritanna sem fundust á síðustu öld en eru frá fyrstu öld fyrir Krist.

Sverðin fjögur og spjótsoddurinn sem fundust í helli nærri Dauðahafi.AP/Ohad Zwigenberg

Að þessu sinni fór hópur fornleifafræðinga í helli til að rannsaka veggjaskrif sem höfðu fundist þar fyrir nokkrum áratugum. Þá fundu þeir vopnin fyrir tilviljun í dýpstu kimum hellisins.

Sérfræðingur í rómverskum fornminjum og hernaðarsögu sagði í samtali við AP að einstaklega sjaldgæft væri að finna rómversk vopn í svo góðu ásigkomulagi. Talið er að þau hafi verið smíðuð í Evrópu og flutt til austurjaðars keisaraveldisins af rómverskum hermönnum.

Hann segir að næstu skref verði að aldursgreina þau betur og greina málminn í þeim til að finna nákvæmlega hvar þau voru framleidd og varpa frekara ljósi á sögu þeirra og mannanna sem báru sverðin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×