„Erfiðast að viðurkenna að ég þyrfti hjálp“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. september 2023 16:13 Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar í Eyjum hefur marga fjöruna sopið. Vísir/Vilhelm Páll Magnússon fyrrverandi útvarpsstjóri og þingmaður segist með tímanum hafa vanist því að vera þekktur á Íslandi. Hann segist lengi hafa gert sér grein fyrir því að hann væri alkóhólisti áður en hann leitaði sér aðstoðar.
Páll er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Hann segist í áraraðir hafa ætlað að sigrast á áfengisvanda af eigin rammleik, áður en hann gafst loks upp. „Það var mér í sjálfu sér ekki feimnismál að opna á alkohólismann á sínum tíma. En það að taka ákvörðunina um að fara í meðferð var ekki auðvelt og mér stóð beygur af því að fara í meðferð á Íslandi. Ég hugsaði með mér að það myndu allir þekkja mig inn á Vogi og að það myndi enda í fjölmiðlum. Þannig að niðurstaða mín var að fara í meðferð í Bandaríkjunum sumarið 2001.“ Páll segir að sér hafi farið að þykja vænt um það að vera þekktur á Íslandi. Vísir/Vilhelm Páll segir rúm tíu ár hafa liðið frá því að hann áttaði sig á því að hann væri alkóhólisti og þar til hann raunverulega viðurkenndi fyrir sjálfum sér að hann gæti ekki tekist á við vandann einn. „Það samræmdist ekki sjálfsmyndinni. Mér fannst ég vera maður sem gæti hætt að drekka af eigin rammleik og ég reyndi það árum saman. Ég man að í fluginu frá Íslandi út í meðferðina voru upplýsingar um flugvélina, hvenær hún hafi verið búin til og hvað hún tæki marga farþega. Ég fór að reikna út hve margir hafi flogið með þessarri tilteknu flugvél frá upphafi og ég fann loks út töluna sem voru einhverjar milljónir farþega. Ég hugsaði: „Af öllum þessum milljónum manna hlýt ég að vera mesti auminginn!“ Páll flutti heldur óhefðbundna ræðu á Alþingi árið 2021 þar sem hann hrósaði fyrir vel unnin þingstörf. Páll segir að á þessum tímapunkti hafi hann enn ekki áttað sig á því að í uppgjöfinni felist sigurinn. Hann segist hafa ákveðið í meðferðinni að hann myndi ekki reyna að að halda neinu leyndu þegar hann kæmi heim. Fundist galið að Páll hafi farið yfir Páll segir að hann hafi lært að þykja vænt um það að vera þekktur á Íslandi. Honum hafi fundist það mjög spennandi þegar hann var ungur og enn hégómagjarn. „Svo þegar hégómaparturinn fór úr þessu fannst mér það óþægilegt, en svo þegar óþægindaparturinn fór í burtu fór mér aftur að finnast það gaman og ég hef bara gaman að því ef fólk þekkir mig og vill tala við mig.“ Páll er einn reyndasti fjölmiðlamaður Íslandssögunnar og spannar ferill hans í fjölmiðlum áratugi, bæði sem fréttamaður, fréttastjóri og útvarpsstjóri. Honum telst til að hann hafi á einhverjum tímapunkti ráðið helming allra starfandi frétta-og blaðamenn á Íslandi. Páll og Edda Sif dóttir hans rifjuðu upp ýmislegt í samtali við Eddu Andrésdóttur í afmælisþætti Stöðvar 2 í fyrra. „Þetta er auðvitað orðinn langur ferill, bæði hjá einkareknum fjölmiðlum og hjá Ríkisútvarpinu. Ég fékk tilboð um að búa til fréttastofu Stöðvar Tvö nokkrum mánuðum áður en hún fór í loftið. Ég var í fínni stöðu á RÚV á þeim tíma og mörgum fannst galið að ég hafi samþykkt að fara yfir, enda öryggið ekkert.“ Páll segist hafa hugsað þessa ákvörðun eins og hann hugsi margt í sínu lífi. Að líklega myndi hann sjá meira eftir því að hafa ekki gripið tækifærið. Upphafsárin á Stöð 2 hafi verið mikið ævintýri en líka kaotísk. „Stofnun fréttastofu Stöðvar 2 var líklega það besta sem gat gerst fyrir RÚV. Fram að þessum tíma höfðu fréttir verið býsna kurteisar við valdhafa, en það breyttist þarna. Þegar ég byrjaði á RÚV var ekkert langt síðan fréttamenn hættu að þéra ráðherra og þá unnu þar enn fréttamenn sem mundu eftir því þegar bílstjóri ráðherra var sendur með spurningalista á undan ráðherranum sem fréttamenn áttu að spyrja þegar viðtalið yrði.“ Sagði eigandanum að hann mætti reka sig Hann segir vinnubrögð í sjónvarpsfréttum hafa breyst með tilkomu Stöðvar 2. Eitt dæmi hafi verið þegar fréttastofan sagði fréttir af veislu Jóns Baldvins Hannibalsonar og Bryndísar Schram, þar sem áfengið var keypt á sérstökum ráðherrakjörum. „Eigendur Stöðvar 2 vildu hlutast til um fréttaflutninginn og myndbirtingar úr veislunni. Ég sagði eigandanum að hann mætti reka mig, en á meðan ég væri fréttastjóri réði ég vinnubrögðunum. Á endanum var sjálfstæði fréttastofunnar virt. Á þessum tíma var mikið um átök um sjálfstæði ritstjórna, sem manni finnst minna um í dag.“ Páll hafði á tímabili ráðið helming fréttafólks á Islandi.Vísir/Vilhelm Páll hefur þurft að taka marga slagi bak við tjöldin í gegnum tíðina sem fréttastjóri og útvarpsstjóri. Hann segist alltaf hafa verið tilbúinn að standa á sannfæringu sinni þegar kemur að blaðamennsku. „Ég tók alltaf slaginn fyrir prinsippin þegar kemur að blaðamennsku. Bæði á Stöð 2 og RÚV. Sumir sögðu við mig á tímabili að ég hafi alltaf tekið ófriðinn þó að friður væri í boði. Það er kannski eitthvað til í því. Maður á ekki að hræðast átök þegar aðstæður krefjast þess, en á ákveðnu tímabili var ég kannski aðeins of átakasækinn. En ég held að með árunum hafi mér tekist að stilla þetta af.“ Hellti sér yfir dagskrárgerðarfólk Páll segir að í grunninn finnist sér að fólk eigi að vera tilbúið að taka slaginn þegar kemur að grundvallaratriðum og prinsippum. Hann hafi haft það sem reglu að ósáttir ráðamenn mættu hringja í sig þegar hann var útvarpsstjóri. Eftirminnilegt er þegar Páll lét Helga Seljan heyra það árið 2013. Þá hafði Páll farið í niðurskurð hjá RÚV og sagt upp fjölda manns. „En það þýddi alls ekki að ég myndi fara eftir ráðleggingum þeirra. Mér er það enn minnistætt þegar þungavigtarmaður í ákveðnum þingflokki mætti inn á gólf á RÚV og hellti sér þar yfir dagskrárgerðarfólk út af einhverju sem honum fannst hlutdrægni. Það var hringt í mig þegar þetta var að gerast og ég mætti á svæðið og sagði honum að ég bæri ábyrgðina ef hann væri ósáttur og hann ætti þá að tala við mig. Hann hélt áfram hrópum og köllum og að úthúða fólki og á endanum þurfti ég að vísa honum úr húsinu. Þetta endaði nánast með líkamlegum átökum.“ Páll var útvarpsstjóri frá árinu 2005 til 2013. Vísir Hann segist hafa fundið mikla breytingu eftir nokkra mánuði í starfi. Smám saman hafi verulega dregið úr því að stjórnmálamenn væru í því að reyna að hafa áhrif á fréttaflutning Ég fann mikla breytingu eftir nokkra mánuði í starfinu og smám saman dró verulega úr því að stjórnmálamenn væru að reyna að hafa áhrif á fréttaflutninginn.“ Páll þekkir vel bæði stöðu einkarekinna fjölmiðla og Ríkisútvarpsins. Hann segir að RÚV eigi að fara af auglýsingamarkaði og það sé lýðræðinu mikilvægt að hafa einkarekna fjölmiðla sem geta starfað vel. „Staða einkarekinna fjölmiðla á Íslandi hefur líklega aldrei verið jafnslæm og í dag og sannarlega aldrei jafnslæm í samanburði við Ríkisútvarpið. RÚV er núna með vísitölutryggðar tekjur og svo aukast tekjur í hlutfalli við fjölgun greiðenda, sem fjölgar alltaf. Þannig að það eru bæði belti og axlabönd. Á sama tíma blæðir einkareknum fjölmiðlum út. Það liggur í augum uppi að RÚV á að fara af auglýsingamarkaði. Hafi það einhvern tíma verið æskilegt er það beinlínis lífsnauðsynlegt núna.“
Fjölmiðlar Podcast með Sölva Tryggva Ríkisútvarpið Sjálfstæðisflokkurinn Vestmannaeyjar Fíkn Mest lesið Dóttir Tommy Lee Jones fannst látin Lífið Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Fékk útskýringu frá ChatGPT eftir áratugaleit að svörum Lífið Opnar sig um augnlokaaðgerðina Lífið Þetta fengu ráðherrarnir gefins Lífið Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Tónlist Þórdís Elva bað poppstjörnunnar Lífið Króli og Birta eignuðust lítinn prins Lífið Var orðið að spurningu um líf og dauða Lífið Maður geti þurft að díla við „konu sem er á túr“ og í vondu skapi Lífið Fleiri fréttir Dóttir Tommy Lee Jones fannst látin Nýársbingó Blökastsins á rólegasta degi ársins Þórdís Elva bað poppstjörnunnar Króli og Birta eignuðust lítinn prins Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Opnar sig um augnlokaaðgerðina Blö byrjar árið á bingói Isiah Whitlock Jr. látinn Þetta fengu ráðherrarnir gefins Sautján ára Glúmur leigði bíl og leitaði Bardot á frönsku rivíerunni Illugi Jökuls gómaði rottuunga eftir klukkutíma eltingaleik Clooney orðinn franskur Þegar Bardot fór í „leyniferðalag“ til Íslands Idris Elba sleginn til riddara fyrir baráttu gegn hnífaburði Blysröð í anda þjóðhátíðar í stað brennu Von á barni með þeim nýja átta mánuðum eftir skilnaðinn Spurt var um fólkið sem var grátandi, ælandi og öskrandi Kryddsíld fagnar afmæli og öllum er boðið Melanie Watson er látin Telur notkun á lagi í Miðflokks-stuðningsmyndbandi siðlausa Stjörnulífið: „Ég get ekki frestað þessu lengur“ Heldur ótrauð áfram þrátt fyrir að ná ekki milljónamarkmiðinu Brigitte Bardot er látin Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Sjá meira