Neytendur

Vegan borgarar Aktu taktu aftur orðnir vegan

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Það voru egg í vegan borgurum Aktu taktu og voru þeir því ekki vegan í raun.
Það voru egg í vegan borgurum Aktu taktu og voru þeir því ekki vegan í raun. Aktu taktu/Facebook

Vegan borgari Aktu taktu var um tíma ekki vegan eftir að staðnum barst vitlaus sending. Áhyggjufullur viðskiptavinur vakti athygli á málinu og voru vegan borgararnir teknir úr sölu. Framkvæmdastjóri Aktu taktu segir að búið sé að kippa málinu í lag.

Elín Auðbjörg Pétursdóttir vakti athygli á því í gærkvöldi í Facebook-hópnum Vegan Ísland að vegan borgararnir á Aktu taktu væru ekki vegan þar sem þeir innihéldu egg. Samt væru þeir seldir sem vegan borgarar.

Meðlimir Vegan Ísland voru ekki sáttir með vinnubrögð Aktu taktu.Facebook

Færslan vakti þó nokkur viðbrögð meðal meðlima Vegan Íslands og benti fólk sérstaklega á að fólk með ofnæmi fyrir eggjum væri í hættu þar sem það pantaði sér gjarnan eggjalausa vegan borgara.

Í innihaldslýsingu borgaranna á Aktu taktu voru meðal annars egg sem eru ekki vegan.

Vitlaus sending

María Rún Hafliðadóttir, framkvæmdastjóri Gleðipinna, svaraði færslu Elínar og sagði að vitlaus sending hefði valdið klúðrinu en að búið væri að bæta úr því.

„Við fengum vitlausa sendingu í síðustu viku,“ sagði María Rún í viðtali við Vísi um málið. 

María Rún Hafliðadóttir er framkvæmdastjóri Gleðipinna sem eiga Hamborgarafabrikkuna, American Style og Aktu taktu.Hamborgarafabrikkan

„Þessu var bara kippt út um leið. Þetta fór ekki einu sinni á alla staðina. Þetta var á Skúlagötu og í Stekkjarbakka,“ sagði hún

„Þetta eru samt grænmetisborgarar. Það stendur á þessu vegetarian á pakkningunni. Þetta var vitlaus afhending og starfsmaðurinn okkar hefur bara séð að þetta væri grænmetis.“

María segir að Aktu taktu hafi fengið ábendingu frá viðskiptavini um að borgararnir væru ekki vegan. „Þá fórum við strax í að fá aðra sendingu og henda út því sem var,“ sagði hún.

„Þetta var því nýkomið inn og strax farið út. Og nýja sendingin er komin.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×