Innlent

Lögreglan mætti til að bera konuna út en hætti svo við

Lovísa Arnardóttir skrifar
Eva segir stjórnvöld verða að taka ábyrgð á konunni og syni hennar.
Eva segir stjórnvöld verða að taka ábyrgð á konunni og syni hennar. Vísir/Rúnar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var mætt við búsetuúrræði flóttafólks síðdegis í dag til að bera út afganska konu og tólf ára gamlan son hennar, en hætti svo við.

Nokkur fjöldi fólks hafði safnast saman fyrir utan en þar var einnig fyrrum talsmaður konunnar, Eva Hauksdóttir, sem sagðist ekki hafa átt von á því að málið myndi ganga svo langt.

Lögreglan var við húsið í um klukkustund. Vísir/Lovísa

„Þau eiga ekki í nein hús að venda og bera enga ábyrgð á þeirri stöðu sem er komin upp. Hún dró umsókn sína til baka og ætlaði að fara til Ítalíu en þau vilja ekki taka við henni. Útlendingastofnun vill ekki taka ábyrgð á henni,“ sagði Eva og að öryggisvörður í húsnæðinu hefði sagt henni að skipunin um að bera þau út hefði komið frá Útlendingastofnun.

„Það er engin að taka ábyrgð á þessu og lögreglan spurði mig hvort ég vildi taka hana heim til mín. Það er ríkið sem ber ábyrgð á þessu og það er ekki hægt að gera einstaklinga ábyrga fyrir því að stofnanir ríkisins standi sig ekki.“

Konan kom til Íslands í janúar eftir að hafa fyrst sótt um vernd á Ítalíu. Eftir um fjögurra mánaða dvöl dró hún til baka umsókn sína um alþjóðlega vernd en vegna yfirlýsts neyðarástands á Ítalíu getur stoðdeild ríkislögreglustjóra ekki flogið með hana þangað aftur.

Klippa: Hættu við að bera afganska konu og son hennar út

Eva er lögmaður og hefur í dag vakið athygli á máli konunnar en lögreglumennirnir tilkynntu henni fyrir utan að konan yrði ekki borin út í dag.

„En ég veit í raun ekkert hvort að þau hafi náð sambandi við Útlendingastofnun. Hún er örugg hér í nótt og svo verðum við að sjá hvað gerist,“ sagði Eva eftir að lögreglan fór af vettvangi.


Tengdar fréttir

And­vaka og í upp­námi en fær engin svör frá Út­lendinga­stofnun

Afgönsk kona með ungt barn bíður þess nú að vera hent út úr búsetuúrræði sínu eftir að hún dró til baka umsókn sína um alþjóðlega vernd. Ítalía neitar að taka aftur við konunni vegna neyðarástands. Konan er því réttindalaus og enginn vill á henni taka ábyrgð. 

Kyrrsett og réttindalaus á Íslandi

Íslenska ríkið hefur nú í vörslum sínum vegabréf afganskrar konu og barns hennar, sem eru kyrrsett á Íslandi án þess að ríkið telji sig bera ábyrgð á þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×