Rut á von á barni og verður ekki með á HM Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 6. júlí 2023 19:46 Rut Arnfjörð Jónsdóttir skoraði fimm mörk í liði KA/Þórs. Vísir/Hulda Margrét Rut Arnfjörð Jónsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, verður ekki með liðinu á HM í Danmörku, Noregi og Svíþjóð sem fram fer í nóvember og desember.
Rut greindi frá því á Instagram-síðu sinni í dag að hún ætti von á barni með sambýlismanni sínum, handboltamanninum Ólafi Gústafssyni, í nóvember. Þetta er annað barn þeirra hjúa, en fyrir eiga þau fimm ára gamlan son. Íslenska kvennalandsliðið þarf því að reiða sig af án Rutar þegar heimsmeistaramótið hefst í nóvember á þessu ári og ljóst að lið KA/Þórs þarf einnig að finna út úr því hvernig sé best að fylla í hennar skarð. Alls á Rut að baki 115 leiki fyrir íslenska A-landsliðið í handbolta. Hún var hluti af liðinu á EM 2010 og 2012, sem og HM 2011, en það eru einu stórmótin sem liðið hefur tekið þátt í til þessa. Þetta verður því í fyrsta sinn sem íslenska kvennalandsliðið verður án Rutar á stórmóti.
Landslið kvenna í handbolta Handbolti Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Fleiri fréttir Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Sjá meira