Handbolti

Bein út­sending: Arnar opin­berar EM-hópinn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arnar Pétursson opinberar EM-hópinn í dag.
Arnar Pétursson opinberar EM-hópinn í dag. Christina Pahnke - sampics/Getty Images

Arnar Pétursson tilkynnir í dag leikmannahóp Íslands sem heldur á EM kvenna í handbolta í desember.

EM fer fram í Tékklandi, Póllandi, Rúmeníu, Slóvakíu og Tyrklandi en Ísland er í A-riðli mótsins sem fram fer í Oradeu í Rúmeníu. Fyrsti leikur er við Slóveníu þann 3. desember en í riðli Íslands eru einnig Svartfjallaland og Ungverjaland.

Arnar má alls velja 20 leikmenn í hópinn en aðeins 16 leikmenn eru á skýrslu í hverjum leik.

Hægt er að gera sex breytingar samtals á meðan mótinu stendur en þó ekki fleiri en tvær á milli leikja. Allir leikmenn sem Arnar velur verða að vera af 35 manna lista sem opinberaður var í gær.

Blaðamannafundur HSÍ hefst klukkan 12:15. HSÍ streymir blaðamannafundinum beint og hann má sjá í meðfylgjandi spilara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×