„Hann fór bara í gegnum vegginn á húsinu, bara hálfur bíllinn fór inn í húsið,“ segir Snorri Stefánsson, eigandi Sauðárkróksbakarís, sem var truflaður svo harkalega við vinnu sína rétt eftir klukkan fimm í morgun. Bakaríið er að hluta til í gömlu timburhúsi.
„Ég var bara inni í vinnslu og var bara að undirbúa vínarbrauð sem ég ætlaði að fara að setja inn í ofninn þegar ég heyri dynkinn eða áreksturinn. „Panika“ pínu, hleypt inn, rafmagn dettur eitthvað út. Svo bara sé ég bíl þarna kominn inn í afgreiðsluborðið hjá mér,“ segir Snorri í samtali við Vísi.
Hann hafi þá hlaupið til baka og hringt í neyðarlínu. Bílstjórinn hafði hins vegar stungið af þegar Snorri kom að bílnum. Síðasta sem Snorri frétti var að lögreglan hefði haft hendur í hári hans. Honum skiljist að ökumaðurinn sé ekki eigandi bílsins og að hann hafi ekki verið allsgáður.
Allt saman handónýtt
Starfsfólk í afgreiðslu mætir um átta leytið á sunnudögum en Snorri segir að hann hefði sjálfur hæglega geta verið að sækja sér kaffisopa þar sem bíllinn kom inn.
„Sem betur fer var enginn að vinna þarna,“ segir Snorri sem keypti bakaríið í haust.
Ljóst er að tjónið er mikið.
„Þetta er bara allt saman handónýtt, fyrir utan það að er gat á húsinu,“ segir Snorri. Hann áætlar að það gæti tekið tvo mánuði að gera upp bakaríið.