Innlent

Orð­ræða um hvað fatlað fólk er dýrt niður­lægjandi

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, segir orðræðu um hve dýrt fatlað fólk sé í rekstri vera niðurlægjandi.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, segir orðræðu um hve dýrt fatlað fólk sé í rekstri vera niðurlægjandi. Vísir/Vilhelm

Formaður Öryrkjabandalags Íslands segir engan málaflokk jafn útsettan fyrir ömurlegri orðræðu og málaflokk fatlaðra. Hún skilji vel að málaflokkurinn sé stór liður í reikningum sveitarfélaga en óskiljanlegt sé að talað sé um kostnað við málaflokkinn sem sligandi.

Tilkynning barst um klukkan eitt eftir hádegi frá Reykjavíkurborg um stöðu fjármála borgarinnar. Þar segir meðal annars að sligandi halli sé á rekstri málaflokks fatlaðs fólks og að á síðasta ári hafi verið 9,3 milljarða halli á málaflokknum hjá borginni.

„Þessi kostnaður hefur aukist mikið á undanförnum árum, sérstaklega í ljósi aukinnar þjónustuskyldu vegna laga frá árinu 2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir,“ segir í tilkynningu frá borginni.

Formaður ÖBÍ segist hafa skilning á að málaflokkurinn sé dýr en orðræðan um að fatlað fólk sé birgði sé orðin þreytt. 

„Ég get alveg skilið og tekið undir með sveitarfélögum að þau hafa þarna málaflokk sem þeim er lögbundin skylda til að sinna. Málflokkur fatlaðs fólks er bara einn af mörgum en hann er svo vanfjármagnaður af ríkinu til sveitarfélaga að þau eru eiginlega komin að þeirri niðurstöðu að þau nái ekki að þjónusta fatlað fólk eins og þeim ber vegna þess að það vanti fjármagn frá ríkinu,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, í samtali við fréttastofu. 

„Ríkið verður að lagfæra þetta. Það komu inn fimm milljarðar um áramótin sem Sigurður Ingi setti til sveitarfélaga en það var talað um að það þyrfti þrettán milljarða. Ég er viss um það að það er enginn málaflokkur jafn útsettur fyrir jafn ömurlegri orðræðu um hve dýr hann sé og málaflokkur fatlaðs fólks.“

Jaðarsetji hópinn enn meira

Hún segir fötluðu fólki mjög erfitt að hlusta á umræðu um hvað það sé dýrt í rekstri.

„Í staðin fyrir að tala bara um okkur sem hluta af samfélaginu. Það er ekki tekið út fyrir sviga hvað skólarnir séu dýrir og það sé ekki hægt að gera eitthvað þar. Þetta er bara lögbundin skylda og þarna verða ríki og sveitarfélög að setjast niður og ræða sig niður á einhverjar lausnir,“ segir Þuríður.

„Svo verður að snúa við þessari orðræðu. Hún er ekki bara niðurlægjandi fyrir fatlað fólk heldur beinlínis til þess fallin að jaðarsetja þennan hóp miklu, miklu meira og kynda undir fordóma gagnvart honum. Meira en er í dag og nóg er nú samt. Það er kominn tími til að hætta þessu.“


Tengdar fréttir

Kröfur ríkisvaldsins að sliga fjárhag sveitarfélaganna

Ófjármagnaðar skuldbindingar sem ríkið hefur lagt á sveitarfélögin vegna málefna fatlaðra er að sliga fjárhag sveitarfélaganna og hafa myndað um 14 milljarða halla á rekstri þeirra. Sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga segir brýnt að endurskoða lög um tekjustofna sveitarfélaganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×