Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Lovísa Arnardóttir skrifar 7. október 2026 14:18 Sigríður Dagný hafnar því að efni sem sé birt í Vikunni og Húsum og híbýli sé ekki fréttir eða fréttatengt. Aðsendar Birtíngur hefur krafist þess að úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla endurskoði frummmat sitt eftir að nefndin komst að þeirri niðurstöðu að útgáfufélagið uppfylli ekki skilyrði fyrir rekstrarstuðningi vegna ársins 2025. Vísað er til þess að efni sem birt er í Vikunni og Húsum og híbýlum sé samfélagslegt efni frekar en fréttir eða fréttatengt efni. Birtíngur hefur skilað andmælum vegna málsins.
Opnað var fyrir umsóknir til úthlutunarnefndar í ágúst og rann frestur til að sækja um út þann 1. september. Úthlutunarreglum var breytt í sumar en síðasta úthlutun var í desember 2025 þegar um 550 milljónum var deilt til 28 einkarekinna fjölmiðla. Birtíngur fékk í þeirri úthlutun rúmar ellefu milljónir í styrk. Í nýjum lögum var stuðningur við einkarekna fjölmiðla, í formi endurgreiðslu á ritstjórnarkostnaði, framlengdur um fimm ár. Í tilkynningu frá ráðuneytinu í sumar kom fram að með því ætti að koma móts við ákall fjölmiðla um aukinn fyrirsjáanleika í þessum efnum. Birtíngur gefur út Vikuna, Hús og híbýli, Gestgjafann og Sumarhúsið og garðinn. Vikan kom fyrst út árið 1938 og Hús og híbýli kom fyrst út árið 1979. Fjölmiðlastyrkir eru aðeins veittir vegna tímarita sem koma út tólf sinnum eða oftar á ári og því falla önnur tímarit en Vikan og Hús og híbýli ekki undir skilgreininguna. Telur að þau ættu að fá styrki fyrir allt Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Birtíngs, segir endanlega ákvörðun nefndarinnar ekki liggja fyrir. „Þetta á bara við um Húsið og híbýli og Vikuna því útgáfutíðnin þarf að vera tólf blöð eða fleiri. Auðvitað ættum við að fá styrki fyrir allt eins og er hjá bókum og við erum náttúrulega með alveg jafn mikinn líftíma og bækur,“ segir Sigríður Dagný í samtali við Vísi. Hún segir það samt annað samtal að ræða það hvar framtíð tímarita liggur. „Á meðan við eigum að vera skráður sem fjölmiðill, hjá fjölmiðlanefnd, þá er ekki hægt að hafa einhverja nefnd sem er ráðin af ríkinu sem ákveður hvaða efni er styrkt og hvað ekki. Vikan er búin að koma út í níutíu ár og hefur mikið menningarlegt gildi. Ef ég fer að breyta efnistökum í takt við þessar úthlutunarreglur þá er ekki víst að fólk sem er vant að kaupa þessi blöð vilji kaupa blöðin. Ef ég fer að fjalla um fréttir sem eru fréttir að þeirra mati.“ Sigríður Dagný segir þetta afar huglægt mat. Spurð hvað gerist fái þau ekki styrk segir hún það til skoðunar og að ekkert hafi verið ákveðið enn. Þau bíði þess að andmælum þeirra verði svarað. Samfélagslegt efni frekar en fréttir Í tilkynningu um málið frá Birtíngi segir að í frummati úthlutunarnefndarinnar komi fram að nefndin telji að efni Vikunnar og Húsa og híbýla sé fremur umfjöllun um samfélagsleg málefni en fréttir og fréttatengt efni. Sigríður Dagný bendir á að umfjöllun um samfélagsleg málefni hafi fallið út sem stuðningshæft efni með lagabreytingu í júní. Hún bendir jafnframt á að umsókn þeirra um styrk varði rekstrarkostnað vegna ársins 2025 en að hún sé metin eftir lögum sem hafi verið breytt í júní á þessu ári og reglugerð sem sett var í júlí. „Löngu eftir að kostnaðurinn féll til. Fjölmiðlar vita því ekki fyrir fram hvaða úthlutunarreglur gilda um yfirstandandi ár, hvað þá það næsta. Slík óvissa er óviðunandi fyrir fjölmiðlarekstur, þar sem ráðningar, útgáfuáætlanir og samningar eru gerðir langt fram í tímann. Ef reglurnar geta breyst eftir á og útilokað heilan flokk miðla eru tímarit í hættu og gætu horfið alveg af íslenskum fjölmiðlamarkaði,“ segir Sigríður Dagný í tilkynningunni. Þar er einnig vísað til þess að í andmælum Birtíngs til nefndarinnar hafi það verið rakið hvað teljist fréttir samkvæmt lögum og vakin athygli á því að aðrir fjölmiðlar endursegi reglulega efni úr Vikunni. Því telji Birtíngur það ekki geta staðist að endursögn á efninu teljist frétt en frumunnið viðtalið sjálft ekki. Þá bendir félagið einnig á jafnræðissjónarmið og að stærri útgáfufélög sem hljóta stuðning birti sambærilegt efni í lífsstílsdeildum sínum. Skráðir fjölmiðlar og blaðamenn í vinnu Sigríður Dagný bendir jafnframt á að bæði Vikan og Hús og híbýli séu skráðir fjölmiðlar samkvæmt lögum og fjölmiðillinn uppfylli allar þær skyldur sem lögin leggja á fjölmiðla og öll önnur skilyrði fyrir stuðningi, svo sem um fjölda starfsmanna á ritstjórn. „Það skýtur skökku við að lögin leggi sömu skyldur á alla skráða fjölmiðla en að aðeins hluti þeirra eigi kost á stuðningi sem kenndur er við fjölmiðla, og þá eingöngu ef efnið fellur undir þrönga túlkun á því hvað teljist fréttir,“ segir hún um það í tilkynningunni. Þá bendir Sigríður Dagný einnig á að á ritstjórn Birtíngs starfi blaðamenn sem eru félagar í Blaðamannafélagi Íslands og fylgja siðareglum þess. „Niðurstaða nefndarinnar leiðir til mótsagnar. Ef blaðamenn Birtíngs skrifa ekki fréttir að mati nefndarinnar vaknar sú spurning hvort þeir eigi heima í stéttarfélagi blaðamanna og hvort kröfur laganna um hlutlægni og nákvæmni eigi við um störf þeirra. Það getur varla verið ætlun löggjafans.“ Í andmælum Birtíngs segir einnig að þau telji ríkið sjálft skekkja fjölmiðlamarkað á Íslandi þegar opinber nefnd meti „með matskenndum hætti hvaða efni teljist fréttir og hvaða miðlar fái þar með stuðning. Sambærilegt efni getur þannig verið styrkhæft hjá einum miðli en ekki öðrum.“ Segi fréttir út frá sjónarhóli kvenna og fjölskyldna Þau segja þetta ganga gegn orðum Loga Einarssonar ráðherra á þingi í september um að stuðningur við fjölmiðla ætti „í sem mestum mæli að eiga sér stað án þess að ráðherra komi nokkurn tímann að því“. Þá benda þau á að í viðtali í Kastljósi í september hafi hann sagt almenning eiga rétt á því að fá fréttir sagðar út frá sínum sjónarhóli. „Vikan hefur í tæp 90 ár sagt fréttir út frá sjónarhóli kvenna og fjölskyldna. Samt er það einmitt sú nálgun sem nú er metin utan kerfisins, á grundvelli reglugerðar sem ráðherra setti sjálfur og segir berum orðum að fréttamatið sé fjölmiðilsins.“ Hún segir Birtíng hafa fundað með ráðherra í janúar um stöðu tímaritaútgáfu á Íslandi og það sé þeirra skoðun að ef tímaritaútgáfan falli ekki undir fjölmiðlastyrkina sem ráðuneytið úthlutar ætti að finna aðra leið til að styrkja hana. Á fundi þeirra í janúar hafi Birtíngur lagt fram erindi um að tímaritaútgáfa byggi við sambærileg skilyrði og bókaútgáfa og að útgáfa tímarita verði felld undir lög um stuðning við útgáfu bóka á íslensku, með allt að 25 prósenta endurgreiðslu kostnaðar. „Tímarit hafa staðið höllum fæti á fjölmiðlamarkaði um allan heim. Prent- og dreifingarkostnaður hefur hækkað og almenningur sækir fréttir í auknum mæli á netið. Það er í raun ótrúlegt að tímarit komi enn út á jafn litlum markaði og á Íslandi. Samt er stefna ráðherra sú að útiloka þau frá stuðningi sem kenndur er við fjölmiðla,“ segir Sigríður Dagný. Vilja að stjórnvöld finni tímaritum stað Hún bendir á að tímarit séu bæði með langan líftíma og söfnunargildi og að mörgu leyti líkari bókum en dagblöðum. „Þau varðveita menningararf á sviði samfélagsumræðu, matarhefða, hönnunar og arkitektúrs og stuðla að vönduðu ritmáli á íslensku. Frummat nefndarinnar sýnir svart á hvítu að núverandi kerfi gerir ekki ráð fyrir tímaritum. Ef stuðningskerfið nær ekki til þeirra veikist starfsumhverfi íslenskrar tímaritaútgáfu og þess menningararfs sem hún geymir. Birtíngur hvetur stjórnvöld til að finna tímaritum stað í kerfinu, annaðhvort innan fjölmiðlastuðnings eða með bókaútgáfu,“ segir Sigríður Dagný að lokum.
Fjölmiðlar Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Menning Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Nýr eigandi tekur við og skötuunnendur geta andað léttar Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira