Barist um nýjan bikar á Hlíðarenda í kvöld Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 17. apríl 2023 10:30 Valskonur eru ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar. vísir/Diego Meistarakeppni Knattspyrnusambands Íslands í kvennaflokki fer fram í kvöld. Þar verður í fyrsta skipti keppt um „Svanfríðarbikarinn.“ Frá þessu greindi KSÍ nú rétt í þessu.
Meistarakeppni KSÍ, eða Meistarar meistaranna, er leikur á milli ríkjandi Íslands- og bikarmeistara. Segir Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Vals, að um sé að ræða fyrsta leik í móti að mati leikmanna. Leikurinn er merkilegur fyrir þær sakir að í fyrsta sinn verður keppt um „Svanfríðarbikarinn.“ Um er að ræða nýjan farandbikar til heiðurs Svanfríði Guðjónsdóttur. Var hún fyrsta konan í stjórn KSÍ og vann ötullega að uppbyggingu kvennaknattspyrnu hér á landi. Í Meistarakeppni kvenna 2023 verður í fyrsta skiptið keppt um Svanfríðarbikarinn, nýjan farandbikar til heiðurs Svanfríði Guðjónsdóttur, sem var fyrsta konan í stjórn KSÍ og hefur unnið ötullega að uppbyggingu knattspyrnu kvenna á Íslandi. https://t.co/i45QHXY8A9— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) April 17, 2023 „Svanfríður vann mikið með landsliði kvenna í knattspyrnu um árabil, útvegaði æfingaleiki og var því til halds og trausts á ýmsan hátt … Svanfríður var meðlimur í Umbótanefnd ÍSÍ fyrir konur í íþróttum um árabil og vann þar frábært starf að hagsmunamálum kvenna í íþróttahreyfingunni,“ segir í yfirlýsingu KSÍ frá því fyrr í dag þegar „Svanfríðarbikarinn“ var kynntur til sögunnar. Þar sem Valur vann báða titlana á síðustu leiktíð þá verður það Stjarnan, liðið sem endaði í 2. sæti Bestu deildarinnar sem mun mæta Valskonum klukkan 19.30 á Hlíðarenda, heimavelli Vals. Verður leikurinn í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild kvenna Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Enski boltinn Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Fleiri fréttir Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Sjá meira