Dæmdur fyrir að hafa káfað á ólögráða kærustu frænda síns Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 4. apríl 2023 18:57 Héraðsdómur Austurlands kvað upp dóm í málinu. VÍSIR/JÓHANNK Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni, með því að hafa káfað á þáverandi kærustu frænda síns. Manninum ber að greiða 500 þúsund í miskabætur og rúmar 2,2 milljónir í sakarkostnað.
Málavextir voru þeir að gleðskapur var meðal nokkurra ungmenna, auk skyldmenna þeirra, í húsi eins. Þegar heltist úr lestinni urðu nokkur eftir, þar á meðal ákærði, frændi hans og brotaþoli, sem var þáverandi kærasta frænda ákærða. „Er ekki hægt að sættast?“ Í héraðsdómi kemur fram að þau, ásamt ónafngreindu vitni, hafi verið að spila tölvuleik inni í herbergi íbúðarinnar þar sem gleðskapurinn hafði áður farið fram. Brotaþoli hafi legið uppi í rúmi og ákærði setið á rúmstokknum. Fyrst hafi ákærði strokið brotaþola um rass og fyrir dómi kvaðst hún hafa frosið við áreitnina. Því næst hafi hann strokið henni, þrýst á kynfæri hennar og brotaþoli þá snúið sér undan. Í málsatvikalýsingu kemur fram að brotaþoli hafa verið miður sín. Hún hafi greint kærasta sínum og öðrum nærstöddum mjög fljótlega frá broti ákærða. Meðal sönnunargagna voru samskipti brotaþola og ákærða, degi eftir brotið, þar sem ákærði spurði hvort það væri „ekki hægt að sættast?/tala.“ Brotaþoli neitaði því og sagði meðal annars: „Þú káfaðir a mer. Þu kafaðir a mer af þvi þu helst að þu myndir komast upp með það af þvi eg virtist vera sofandi. Það er virkilega ogeðslegt.“ Þessu neitaði brotaþoli í skeytasendingunum, en ítrekaði að hann vildi tala við brotaþola. Vitni studdu framburð brotaþola Ákærði sagði við skýrslutöku hjá lögreglu að hann myndi lítið eftir ætluðum brotum. Hann sagði þó að brotaþoli væri væntanlega ekki að kæra sig, hefði hann ekki gert neitt rangt. Miðað við eðli ætlaðra brota væri þó vænlegast að ræða málin, frekar en að kæra athæfið til lögreglu. Hann kannaðist við að hafa strokið brotaþola um rassinn en neitaði því að hafa annað gert. Brotaþoli lýsti því að í skýrslutökum hjá lögreglu að hún hafi vegna þreytu legið fyrir í rúminu, fullklædd en vakandi. Þegar þáverandi kærasti hennar og ónafngreint vitni hafi verið að horfa á tölvuskjá, hafi ákærði brotið á henni. Mjög skömmu eftir að ákærði hafi farið brott hafi hún greint frá því sem gerst hafði. Ónafngreinda vitnið sagðist ekki hafa séð kynferðislegu áreitnina, enda hafi hann snúið baki í ákærða og brotaþola. Hann hafi hins vegar séð brotaþola koma grátandi út af baðherbergi í íbúðinni, skömmu eftir að ákærði fór. Önnur vitni, þar á meðal þáverandi kærasti brotaþola, báru á sömu leið og staðfestu að brotaþoli hafi mjög skömmu eftir brotið tilkynnt háttsemina og liðið illa. Hafi ranglega viðurkennt brotið Fyrir dómi neitaði ákærði sök. Hann kvaðst hafa hrist brotaþola aðeins til, í því skyni að kanna hvort það væri í lagi með hana. Hann sagði snertinguna hafa varað í um fimm sekúndur og sagðist hvorki hafa snert rass brotaþola né káfað á kynfærum hennar. Hann sagðist síðar hafa frétt af því að brotaþoli hafi farið að gráta og þess vegna haft samband við hana vegna málsins, sem hann væri mjög leiður yfir. Hann áttaði sig á því að brotaþola hefði liðið illa og því ranglega viðurkennt að hafa strokið yfir rass hennar í yfirheyrslu hjá lögreglu. Brotaþoli ítrekaði fyrir dómi að ákærði hafi brotið á sér, eins og hún hafði gert í skýrslutöku hjá lögreglu. Hún hafi frosið og liðið mjög illa. Eftir brotið hafi hún meðal annars fundið fyrir reiði og þunglyndi og þegið viðeigandi lyf vegna þessa. Fimm hundruð þúsund í miskabætur Héraðsdómari rakti málsatvik ítarlega og nefndi að frásögn ákærða hafi verið í nokkru ósamræmi við fyrri lögregluskýrslu. Framburður brotaþola hafi hins vegar verið trúverðugur, í fullu samræmi við aðstæður og einnig trúverðugan framburð annarra vitna. Brotaþoli hafi fylgt málinu eftir strax næsta dag, meðal annars með kæru til lögreglu. Þar af leiðandi teldist rétt að leggja framburð brotaþola til grundvallar, þrátt fyrir neitun ákærða um að hann hafi áreitt hana kynferðislega. Ákærða ber því að sæta fangelsi skilorðsbundið í tvo mánuði og greiða brotaþola 500 þúsund krónur í miskabætur. Þá ber honum einnig að greiða rúmar 2,2 milljónir í sakarkostnað vegna málsins.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent