Innlent

„Ég sé ekki fram á það verði gert neitt fyrir fólk eins og okkur“

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Þórdís hefur ekki fengið nein svör um hvenær 16 mánaða sonur hennar komist inn á leikskóla.
Þórdís hefur ekki fengið nein svör um hvenær 16 mánaða sonur hennar komist inn á leikskóla. Aðsend

Fjögurra manna fjölskylda neyddist til að flytja úr íbúð sinni og leigja hana út til að ná endum saman, þar sem yngsta barnið kemst ekki inn á leikskóla. Foreldrar segja nóg komið af innantómum yfirlýsingum og krefjast tafarlausra aðgerða. Mótmæli hafa verið boðuð á ný í næstu viku.

Áform sem Reykjavíkurborg kynnti á síðasta ári um opnun sjö nýrra leikskóla auk þess sem börn frá tólf mánaða aldri áttu að fá pláss gengu ekki eftir. Mörg hundruð börn eru á biðlista og aukinnar örvæntingar gætir hjá ráðalausum foreldrum. Boðað var til mótmæla í morgun við ráðhúsið.

Ein þeirra sem mætti til að mótmæla í Ráðhúsinu í morgun er Þórdís Ólöf, móðir Ævars Nonna, 16 mánaða.

Átta mánuðir eru síðan fæðingarorlofið kláraðist og hafa Þórdís og maðurinn hennar þurft að brúa bilið síðan.

Þórdís skráði sig í nám eftir fæðingarorlof til að eiga rétt á námslánum. Hún kláraði námið og byrjaði að vinna í janúar. Maðurinn hennar er nú launalaus heima með barnið.

Þórdís skráði sig í nám eftir fæðingarorlof til að eiga rétt á námslánum. Hún kláraði námið og byrjaði að vinna í janúar. Maðurinn hennar er nú launalaus heima með barnið. Aðsend

Fjölskyldan neyddist til að flytja úr íbúðinni sinni og leigja hana út til að ná endum saman.

„Þetta gengur auðvitað ekki upp fjárhagslega fyrir fjögurra manna fjölskyldu. Þannig að við búum núna í íbúð sem foreldrar mínir leigja okkur ódýrt. Hún er 34 fermetrar, við erum fjögur og erum að leigja okkar íbúð út á airbnb af því við sjáum ekki fram á að geta staðið straum af tekjum með einum launatjékka,“ segir Þórdís.

Upphaflega ætluðu þau sér aðeins að leigja íbúðina í þrjá mánuði en vegna þess að Ævar Nonni fær hvergi dagvistun hefur sá tími sífellt lengst og óvissa varðandi framhaldið er mikil.

„Dagarnir sem við megum leigja út eru búnir núna um páskana og þá þurfum við að ákveða hvort við ætlum að setja þetta í langtímaútleigu og búa áfram í 34 fermetrum eða hvort við munum flytja aftur inn.“

Þetta er rosalega streituvaldandi og kvíðavaldandi og staða sem ég óska ekki neinum að vera í.

„ Það er mikið um stór loforð og langtímaáætlanir en hvað verður gert fyrir svona fólk eins og mig, sem er bara í rosalega viðkvæmri stöðu? Ég sé ekki fram á það verði gert neitt fyrir fólk eins og okkur.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×