Innlent

Fara fram á viku­langt gæslu­varð­hald yfir byssu­manninum

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn leiðir rannsókn málsins.
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn leiðir rannsókn málsins. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið fram á vikulangt gæsluvarðhald yfir manninum sem grunaður er um að hafa skotið af byssu inni á skemmtistaðnum The Dubliner í miðborg Reykjavíkur á sunnudagskvöld.

Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn í samtali við Vísi, en hann leiðir rannsókn málsins.

Maðurinn, sem er um þrítugt, var leiddur fyrir dómara nú fyrir stundu. 

Skýrslutaka yfir manninum hófst fyrr í dag og lauk nú síðdegis.

Í samtali við Vísi fyrr í dag sagði Grímur að maðurinn hefði verið handtekinn í gærkvöldi með sérsveit ríkislögreglustjóra. 

„Hann finnst á grundvelli þess að við erum með allskonar upplýsingar, bæði úr öryggismyndavélum, sem og upplýsingar frá almenningi, og svo bara upplýsingar sem við notum við svona leit, sem við förum kannski ekki nákvæmlega út í hverjar eru.“ 

Hann gat engar frekari upplýsingar gefið um hinn handtekna.


Tengdar fréttir

Skot­maðurinn hand­tekinn

Maður sem grunaður er um að hafa skotið af byssu inni á skemmtistaðnum The Dubliner í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi hefur verið handtekinn. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist ekki ætla að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×