Innlent

Brotist inn í Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garðinn í nótt

Bjarki Sigurðsson skrifar
Ekki er vitað hvers vegna maðurinn þurfti að komast í garðinn eftir lokun.
Ekki er vitað hvers vegna maðurinn þurfti að komast í garðinn eftir lokun. Vísir/Vilhelm

Brotist var inn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Laugardalnum í Reykjavík í nótt. Innbrotsþjófurinn náði að forða sér á hlaupum áður en lögregla kom á staðinn.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem farið er yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar. 

Kona var handtekin fyrir utan bráðamóttökuna eftir að hafa verið til vandræða í og við sjúkrabifreið. Hún var vistuð í fangaklefa. Ofurölvi karlmaður var einnig vistaður í fangaklefa eftir að hafa ekki getað greitt fyrir leigubílafar eða gefið upp hvert hann vildi láta aka sér. 

Manni var vísað út af hóteli í miðbænum eftir að hafa verið þar til vandræða. Hann er ekki velkominn aftur á hótelið og þarf að finna sér annan samastað. 

Karlmaður var handtekinn eftir líkamsárás á hóteli í Hafnarfirði. Hann var vistaður í fangaklefa en árásarþoli var fluttur á bráðamóttöku. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×