Mygla fannst í eldra húsnæði Melaskóla Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 24. febrúar 2023 12:24 Í tölvupósti sem Harpa Reynisdóttir skólastjóri Melaskóla sendi á foreldra og aðstandendur í gærdag kemur fram að sérfræðingar hjá verkfræðistofunni Eflu hafi verið að skoða ástand skólans í vetur Vísir/Vilhelm Mygla hefur greinst á nokkrum stöðum í eldra húsnæði Melaskóla. Skólastjórnendur hafa boðið til fundar með foreldrum og aðstandendum nemenda næstkomandi mánudag.
Þetta kemur fram í tölvupósti sem sendur var á foreldra og aðstandendur barna í Melaskóla í gær. Líkt og fram kom í frétt Vísis þann 2. janúar síðastliðinn hefur mygla komið upp í um þrjátíu grunn-og leikskólum í Reykjavík. Fimm skólar hafa verið lokaðir, í heild eða að hluta til: Hagaskóli, Laugarnesskóli, Sunnuás, Grandaborg og Nóaborg. Helgi Grímsson sviðsstjóri segir að borgin sé í átaki með að fara yfir skólahúsnæði borgarinnar og því líklegt að fleiri skólahúsnæði greinist með myglu. „Það sem vitum núna er og er búið að vera vinna er að þetta um þrjátíu hús þar sem hefur greinst mygla í mjög mismiklum mæli en þetta segir líka að við erum að gera betur, starfsfólk er líka meðvitaðra en áður um að þessi vandi geti komið upp. Við erum í átaki og þess vegna segi ég að á komandi mánuðum muni bætast í hópinn það tel ég alveg víst,“ sagði Helgi. Telja að ekki þurfi að færa starfsemina úr húsi Í tölvupósti sem Harpa Reynisdóttir skólastjóri Melaskóla sendi á foreldra og aðstandendur í gærdag kemur fram að sérfræðingar hjá verkfræðistofunni Eflu hafi verið að skoða ástand skólans í vetur, meðal annars með rakamælingum og sýnatökum. „Niðurstöðurnar hafa nú verið kynntar fyrir okkur skólastjórnendum. Það liggur fyrir að mygla greinist á nokkrum stöðum í eldra húsinu, en hins vegar er upprunalegi gólfdúkurinn að verja okkur að mörgu leyti en hann þykir víst einstaklega þykkur. Farið verður í minni háttar aðgerðir og tilfæringar strax en ekki er talið að við þurfum að flytja starfsemina úr húsi sem eru vissulega góðar fréttir. Umfangsmeiri framkvæmdir munu bíða þar til í sumar,“ segir í bréfinu. Þá kemur fram að þegar í stað verði ráðist í viðurkenndar mótvægisaðgerðir til að bæta innivist. „Næstu daga verða sett upp lofthreinsitæki í skólanum og þá verður farið í sérstök mygluþrif á áhættusvæðum í vetrarfríinu.“ Skólastjórnendur hafa boðað til B opins fundar með foreldrum mánudaginn 27. febrúar þar sem sérfræðingar frá Eflu munu fara yfir niðurstöður sínar. Þar verða einnig fulltrúar frá umhverfis- og skipulagssviði, skóla- og frístundasviði og eignaskrifstofu auk stjórnenda Melaskóla. Þá kemur fram í tölvupóstinum að fyrr um daginn verði fundað með starfsfólki. Engin svör fyrr að loknum fundi Þegar Vísir leitaði svara hjá Hörpu Reynisdóttur skólastjóra Melaskóla vísaði hún á Evu Bergþóru Guðbergsdóttur, samskiptastjóra hjá Reykjavíkurborg. Í skriflegu svari Evu kemur fram að haldnir verði fundir með starfsfólki og foreldrum á mánudag þar sem verður farið yfir þessi mál með sérfræðingum og niðurstöður kynntar. Ekki hafi verið hægt að halda fundina fyrr vegna vetrarleyfis. Þá muni ekki verða veittar upplýsingar til fjölmiðla fyrr en í framhaldi af þessum fundum.
Mygla Heilbrigðismál Grunnskólar Reykjavík Tengdar fréttir Mygla hefur greinst í um þrjátíu skólabyggingum og búist er við aukningu Mygla hefur komið upp í um þrjátíu grunn-og leikskólum í Reykjavík. Nú síðast í þremur leikskólum en færa þarf starfsemi tveggja þeirra í annað húsnæði. Sviðsstjóri segir borgina í átaki og telur að fleiri skólar bætist í hópinn. 2. janúar 2023 20:42 Mygla í nokkrum leikskólum til viðbótar, borgin bregðist hraðar við Mygla hefur fundist á nokkrum leikskólum í Reykjavík og bætast þeir þar með í sístækkandi hóp grunn-og leikskóla sem glíma við mygluvanda. Sviðsstjóri skóla-og frístundasviðs segir mun betur fylgst með húsnæði en áður. Ekki er ljóst hvort myglan muni hafa áhrif á starfsemi skólanna. 2. janúar 2023 12:01 Mygla í grunnskólum Garðabæjar: Bæjarstjórn lítur málið alvarlegum augum Mygla hefur greinst í tveimur grunnskólum í Garðabæ. Foreldrar eru ósáttir við hversu seint var brugðist við ábendingum og gagnrýna skort á upplýsingagjöf. Bæjarstjóri lofar allsherjarúttekt og endurbótum. 21. desember 2022 09:35 Nemendur Grandaborgar færðir öðru sinni vegna myglu í bráðabirgðahúsnæði Foreldri barns á leikskólanum Grandaborg, þar sem mygla fannst í sumar, segist orðið þreytt á endalausu hringli og loðnum svörum frá borginni. Mygla er í bráðabirgðahúsnæði sem hluti nemenda var færður í en færa á þá enn annað í byrjun desember. 21. nóvember 2022 19:31 Mygla í skólum - Áskorun til foreldrafélaga Undanfarin misseri hafa foreldrafélög víða um land verið iðin við að skora á yfirvöld í viðkomandi sveitafélögum að gera úrbætur tengdar myglu, gera kröfu um endurbætur húsnæði og/eða byggingu nýs húsnæðis og allt eru þetta réttmætar kröfur. 7. nóvember 2022 22:01 Mygla fannst í aðalbyggingu Kársnesskóla við Vallargerði Mygla fannst í aðalbyggingu Kársnesskóla við Vallargerði nú á dögunum og hefur tilkynning verið send á foreldra. Myglan kom upp í álmu þar sem fyrsti og þriðji bekkur er til húsa en aðgerðir vegna myglunnar eru nú þegar hafnar. Sex kennslustofur verða rýmdar og voru tvær rýmdar um leið og grunur lék á að um myglu væri að ræða, áður en niðurstöður lágu fyrir. 13. október 2022 16:45 Vona að allir Hagskælingar geti verið í skólanum næsta vor Stór hluti nemenda við Hagaskóla verður við nám í bráðabirgðahúsnæði í Ármúla fram yfir næstu áramót. Stefnt er á stækkun skólans samhliða endurbótum vegna mygluvandamála. Áætlaður framkvæmdatími er þrjú ár. 7. apríl 2022 16:22 Korpuskóli skásti möguleikinn í afleitri stöðu Tekin hefur verið ákvörðun um að nemendur í 8. bekk Hagaskóla verði í vikunni fluttir tímabundið í Korpuskóla í Grafarvogi. Þar mun kennsla fara fram í um 3-5 vikur á meðan leyst er úr brunavarnamálum í bráðabirgðahúsnæði þeirra í Ármúla. Formaður Foreldrafélags Hagaskóla segir þetta skásta möguleikann í annars afleitri stöðu. 28. september 2022 11:55 Meiri mygla fannst í Laugalækjarskóla Búið er að loka þremur skólastofum í Laugalækjarskóla vegna myglu. Flytja þarf skólastarfið tímabundið í annað húsnæði á meðan viðgerðir fara fram eftir áramótin. 12. desember 2021 17:16 Nemendur kippa sér lítið upp við breytingarnar í Hagaskóla Til greina kemur að rífa hluta af Hagaskóla eftir að svæsin mygla fannst í húsnæðinu. Allt kapp er lagt á að uppræta mygluna svo hægt verði að hefja kennslu þar að nýju, en á meðan fer kennsla að stærstum hluta fram á Hóteli Sögu og Háskólabíói. Nemendur kippa sér hins vegar lítið upp við þetta fyrirkomulag, og raunar líkar það bara ágætlega. 2. desember 2021 20:01 Níundi bekkur Hagaskóla verður í Háskólabíói fram að jólum Skólastjóri Hagaskóla segir stöðuna í skólanum sérstaka um þessar mundir. Aðeins einn árgangur er eftir í húsnæði skólans þar sem mygla hefur fundist í álmum áttunda og níunda bekkjar. Þá er einnig mögulegt að mygla leynist í álmu tíunda bekkjar. Unnið er að endurbótum en ómögulegt er að segja hversu langan tíma það muni taka. 30. nóvember 2021 17:11 Mest lesið Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent „Árleg æfing í vonbrigðum“ Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Innlent Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Innlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent Engar ruslatunnur í Grindavík Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Innlent Fleiri fréttir „Árleg æfing í vonbrigðum“ Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Frægasti köttur landsins týndur Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Engar ruslatunnur í Grindavík Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Sjá meira
Mygla hefur greinst í um þrjátíu skólabyggingum og búist er við aukningu Mygla hefur komið upp í um þrjátíu grunn-og leikskólum í Reykjavík. Nú síðast í þremur leikskólum en færa þarf starfsemi tveggja þeirra í annað húsnæði. Sviðsstjóri segir borgina í átaki og telur að fleiri skólar bætist í hópinn. 2. janúar 2023 20:42
Mygla í nokkrum leikskólum til viðbótar, borgin bregðist hraðar við Mygla hefur fundist á nokkrum leikskólum í Reykjavík og bætast þeir þar með í sístækkandi hóp grunn-og leikskóla sem glíma við mygluvanda. Sviðsstjóri skóla-og frístundasviðs segir mun betur fylgst með húsnæði en áður. Ekki er ljóst hvort myglan muni hafa áhrif á starfsemi skólanna. 2. janúar 2023 12:01
Mygla í grunnskólum Garðabæjar: Bæjarstjórn lítur málið alvarlegum augum Mygla hefur greinst í tveimur grunnskólum í Garðabæ. Foreldrar eru ósáttir við hversu seint var brugðist við ábendingum og gagnrýna skort á upplýsingagjöf. Bæjarstjóri lofar allsherjarúttekt og endurbótum. 21. desember 2022 09:35
Nemendur Grandaborgar færðir öðru sinni vegna myglu í bráðabirgðahúsnæði Foreldri barns á leikskólanum Grandaborg, þar sem mygla fannst í sumar, segist orðið þreytt á endalausu hringli og loðnum svörum frá borginni. Mygla er í bráðabirgðahúsnæði sem hluti nemenda var færður í en færa á þá enn annað í byrjun desember. 21. nóvember 2022 19:31
Mygla í skólum - Áskorun til foreldrafélaga Undanfarin misseri hafa foreldrafélög víða um land verið iðin við að skora á yfirvöld í viðkomandi sveitafélögum að gera úrbætur tengdar myglu, gera kröfu um endurbætur húsnæði og/eða byggingu nýs húsnæðis og allt eru þetta réttmætar kröfur. 7. nóvember 2022 22:01
Mygla fannst í aðalbyggingu Kársnesskóla við Vallargerði Mygla fannst í aðalbyggingu Kársnesskóla við Vallargerði nú á dögunum og hefur tilkynning verið send á foreldra. Myglan kom upp í álmu þar sem fyrsti og þriðji bekkur er til húsa en aðgerðir vegna myglunnar eru nú þegar hafnar. Sex kennslustofur verða rýmdar og voru tvær rýmdar um leið og grunur lék á að um myglu væri að ræða, áður en niðurstöður lágu fyrir. 13. október 2022 16:45
Vona að allir Hagskælingar geti verið í skólanum næsta vor Stór hluti nemenda við Hagaskóla verður við nám í bráðabirgðahúsnæði í Ármúla fram yfir næstu áramót. Stefnt er á stækkun skólans samhliða endurbótum vegna mygluvandamála. Áætlaður framkvæmdatími er þrjú ár. 7. apríl 2022 16:22
Korpuskóli skásti möguleikinn í afleitri stöðu Tekin hefur verið ákvörðun um að nemendur í 8. bekk Hagaskóla verði í vikunni fluttir tímabundið í Korpuskóla í Grafarvogi. Þar mun kennsla fara fram í um 3-5 vikur á meðan leyst er úr brunavarnamálum í bráðabirgðahúsnæði þeirra í Ármúla. Formaður Foreldrafélags Hagaskóla segir þetta skásta möguleikann í annars afleitri stöðu. 28. september 2022 11:55
Meiri mygla fannst í Laugalækjarskóla Búið er að loka þremur skólastofum í Laugalækjarskóla vegna myglu. Flytja þarf skólastarfið tímabundið í annað húsnæði á meðan viðgerðir fara fram eftir áramótin. 12. desember 2021 17:16
Nemendur kippa sér lítið upp við breytingarnar í Hagaskóla Til greina kemur að rífa hluta af Hagaskóla eftir að svæsin mygla fannst í húsnæðinu. Allt kapp er lagt á að uppræta mygluna svo hægt verði að hefja kennslu þar að nýju, en á meðan fer kennsla að stærstum hluta fram á Hóteli Sögu og Háskólabíói. Nemendur kippa sér hins vegar lítið upp við þetta fyrirkomulag, og raunar líkar það bara ágætlega. 2. desember 2021 20:01
Níundi bekkur Hagaskóla verður í Háskólabíói fram að jólum Skólastjóri Hagaskóla segir stöðuna í skólanum sérstaka um þessar mundir. Aðeins einn árgangur er eftir í húsnæði skólans þar sem mygla hefur fundist í álmum áttunda og níunda bekkjar. Þá er einnig mögulegt að mygla leynist í álmu tíunda bekkjar. Unnið er að endurbótum en ómögulegt er að segja hversu langan tíma það muni taka. 30. nóvember 2021 17:11