Þetta sagði Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands, í sjónvarpsviðtali í gær en hann sagði engin ummerki um að Rússar væru að byggja upp mikinn herafla á einum tilteknum stað í Úkraínu heldur væru þeir að reyna að sækja fram víða og það hefði kostað mörg mannslíf, samkvæmt frétt Wall Street Journal.
Wallace tók einnig undir fregnir um að Rússar hefðu misst heilt stórfylki við bæinn Vuhledar í Dónetsk héraði. Wallace sagði Rússa hafa misst meira en þúsund menn þar á einungis tveimur dögum en þeir hafa gert árásir á bæinn frá því í janúar.
Sjá einnig: Segja Rússa hafa misst heilt stórfylki við Vuhledar
Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að Rússar væru að dæla mönnum á víglínurnar í Úkraínu. Rússneski herinn notaði lítið þjálfaða og illa búna hermenn til árása og þeir hefðu orðið fyrir miklu mannfalli.
Læra ekki af mistökum sínum
Misheppnaðar árásir Rússa á Vuhledar og annarsstaðar í austurhluta Úkraínu hafa vakið efasemdir um að Rússar hafi það sem þurfi til að halda svo umfangsmiklum árásum áfram til lengri tíma. Rússneskir herbloggarar hafa verið mjög gagnrýnir á aðgerðir hersins við Vuhledar og sagt að forsvarsmenn hersins hafi ekki lært af mistökum sínum.
Í frétt New York Times er haft eftir bandarískum embættismönnum að þar á bæ sé áætlað að um 80 prósent alls rússneska hersins komi nú að innrásinni í Úkraínu. Það er eftir að tugir þúsundir lítið þjálfaðra kvaðmanna hafa verið sendir til Úkraínu.
Sjá einnig: Rússar veikja varnir sínar í vestri vegna innrásarinnar
Meðal þeirra mistaka er að Rússar létu Úkraínumenn vita af því að til stæði að gera árásir á Vuhledar. NYT hefur eftir einum af talsmönnum úkraínska hersins að rússneskir hermenn hafi sagt frá því á samfélagsmiðlum að Vuhledar og markmiðið hafi verið að gera úkraínska hermenn hrædda.
Talsmaðurinn sagði að leiðtogar hersveita Rússa við Vuhledar hefðu einnig gert mistök með því að taka ekki inn í reikninginn að bærinn Vuhledar væri umkringdur ökrum sem þaktir væru jarðsprengjum og þeir hefðu ekki áttað sig á því að hve öflugt lið Úkraínumenn væru með í bænum.
Hann sagði að Rússar hefðu breytt árásum sínum við Vuhledar og væru byrjaðir að senda hermenn áfram í smærri sveitum. Um tíu til fimmtán menn í hvert sinn og að markmiðið væri líklega að leita að veikleikum á vörnum Úkraínumanna.
Hermennirnir rússnesku væru þó eingöngu að ganga út í opinn dauðan.
Hér að neðan má sjá þráð frá því fyrir viku síðan um afleiðingar stórrar árásar Rússa á Vuhledar.
#Ukraine: At least 31 vehicles lost - the aftermath of the Russian attack on Vuhledar, #Donetsk Oblast.
— Ukraine Weapons Tracker (@UAWeapons) February 9, 2023
13 Russian tanks (mostly T-72B3), 12 BMP-1/BMP-2 infantry fighting vehicles, 2 MT-LB, an IMR combat engineering vehicle and others were destroyed or damaged and abandoned.
pic.twitter.com/FdZmLtn4ay
Segja Rússa hafa misst helming skriðdreka þeirra
Sérfræðingar bresku hugveitunnar International institute for strategic studies segja að útlit sé fyrir að Rússar hafi misst meira en tvö þúsund skriðdreka í Úkraínu en það samsvarar meira en helmingi af nothæfum skriðdrekum þeirra.
Greining IISS gefur til kynna að Rússar hafi misst um helming skriðdreka af gerðinni T-72 og um tvo þriðju af hinum nýrri T-80.
Áætlað er að Rússar eigi um fimm þúsund skriðdreka til viðbótar í geymslum en þeir eru eldri og taldir í ónothæfu ástandi. Greinendur IISS segja líklegra en ekki að margir þeirra séu í raun bara rusl.
Í frétt WSJ segir að IISS áætli einnig að Úkraínumenn hafi misst milli 450 og sjö hundruð skriðdreka. Þeir eigi um 950 eftir í nothæfu ástandi.
#Ukraine: In the vicinity of Vuhledar, #Donetsk Oblast, a Russian T-72B3 tank was destroyed by Ukrainian forces- using a RGD-5 grenade dropped right through the driver's hatch.
— Ukraine Weapons Tracker (@UAWeapons) February 15, 2023
via @AlexBondODUA pic.twitter.com/jfcP986Fa2
Úkraínumenn eru taldir ætla að reyna að halda aftur af Rússum og draga úr hernaðargetu þeirra með því að þvinga rússneska hermenn til að sækja fram gegn vörnum Úkraínumanna. Á sama tíma vilja þeir byggja upp eigin hersveitir með vestrænum vopnum til að undirbúa gagnárásir gegn Rússum í vor.
Bardagar hafa verið sérstaklega harðir við Bakhmut í Dónetsk héraði en þar hafa Rússar sótt hægt frem eftir margra mánaða árásir og eru sagðir nærri því að umkringja bæinn.
Umfangsmiklar árásir Rússa hafa einnig kostað Úkraínumenn mörg mannslíf og sömuleiðis gífurlegt magn skotfæra. Bakhjarlar Úkraínu segja mjög mikilvægt að koma frekari hergögnum til Úkraínu eins fljótt og auðið er.