Mangushev fór fyrir hersveit í Luhansk sem hafði það verkefni að skjóta niður dróna. Áður hafði hann verið meðal stofnenda málamiðlahóps sem barðist gegn Úkraínuher árið 2014, sama ár og Rússar hernámu Krímskaga.
Málaliðaforinginn komst í fréttirnar í ágúst í fyrra þegar hann birtist á myndskeiði á samfélagsmiðlum þar sem hann hélt á höfuðkúpu manns á sviði, sem hann sagði hafa verið meðal þeirra Úkraínumanna sem vörðust í Azovstal-stálverksmiðjunni í Maríupól.
Mangushev sagði Rússa ekki í stríði við fólk heldur vegna hugmyndarinnar um Úkraínu sem ríki á móti Rússlandi. Þá skipti engu máli hversu margir Úkraínumenn féllu í átökunum.
Vitað er að Mangushev starfaði um tíma við hlið Yevgeny Prigozhin, stofnanda Wagner-málaliðahópsins, sem pólitískur ráðgjafi. Annar öfga þjóðernissinni, Pavel Gubarev, segir alla vita hver ber ábyrgð á dauða Mangushev og bendir í þessu samhengi á að ekkert hafi heyrst frá Prigozhin.
BBC hefur eftir Mark Galeotti, sérfræðingi í málefnum Rússlands, að morðið á Mangushev sé til marks um að landið sé að hverfa aftur til aðferðafræði 10. áratugar síðustu aldar, þegar „morð voru viðskiptataktík og línurnar á milli stjórnmála, viðskipta, glæpa og stríðsátaka voru næstum merkingarlaus“.