Ákærður fyrir áreitni á leið frá Íslandi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 16. janúar 2023 10:32 Celebrity Summit er tíður gestur við strendur Íslands. Getty Bandarískur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni í garð starfsmanns skemmtiferðaskips, um borð í skipinu, sem var á leið frá Íslandi til Bandaríkjanna.
Bandarískir fjölmiðlar fjalla um málið. Þar segir að atvikið hafi átt sér stað snemma morguns þann 30. ágúst síðastliðinn um borð í skemmtiferðaskipinu Celebrity Summit. Samkvæmt ákæru málsins á umræddur maður að hafa áreitt starfsmanns skipsins, sem var við störf að þrífa klósett skipsins. Kemur fram í ákærunni að skipið hafi verið á leið til Boston í Bandaríkjunum frá Reykjavík, er atvikið átti sér stað. Er maðurinn sagður hafa nálgast starfsmanninn og gripið í handlegg hans. Starfsmaðurinn er þá sagður hafa spurt umræddan mann hvað hann væri að gera. Maðurinn er því næst sagður hafa gripið um kynfæri starfsmannsins utan yfir buxur hans með báðum höndum, og viðhaft kynferðisleg ummæli. Starfsmaðurinn færði sig frá manninum sem einnig er sagður hafa beðið starfsmanninn afsökunar og að segja engum frá atvikinu. Maðurinn var handtekinn eftir að skipið kom til hafnar í Boston. Hefur nú verið tekin ákvörðun um að ákæra hann fyrir kynferðislega áreitni, sem fyrr segir.
Skemmtiferðaskip á Íslandi Erlend sakamál Bandaríkin Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira