Innlent

Árs­há­marki náð í dag þegar mengun fór yfir klukku­stundar­heilsu­verndar­mörk

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Svava segir tól til róttækara inngrips vanta.
Svava segir tól til róttækara inngrips vanta. Vísir/Vilhelm

Vegna stillu og frosts hefur styrkur köfnunardíoxíðs mælst hár í Reykjavík á dögunum. Núna síðdegis fór styrkurinn yfir klukkustundarheilsuverndarmörk í átjánda sinn á árinu. Samkvæmt reglugerð frá umhverfisráðuneytinu má aðeins fara yfir þessi mörk átján sinnum á ári.

Svava Steinarsdóttir, heilbrigðisfulltrúi hjá heilbrigðiseftirlitinu hvetur almenning til að nota umhverfisvænni samgöngur og fyrirtæki til þess að skipta yfir í rafmagnsbíla.

Hún segir einstakar aðstæður hafa myndast með þeirri stillu og frosti sem hefur verið síðustu daga og gert það að verkum að mengun liggur yfir borginni.

„Svo auðvitað þegar það er svona kalt og slæm færð þá eyða bílarnir meira þannig losunin er meiri,“ segir Svava.

Aðspurð hvort það væru einhverjar aðgerðir sem hún myndi vilja sjá að væri mögulegt að grípa til þegar þessi staða er komin upp svona snemma á árinu nefnir hún frekari reglugerðir og tækifæri til róttækara inngrips við þessar aðstæður.

„Það sem í rauninni kannski þarf að gera er að gefa okkur tækifæri til þess að grípa inn í á róttækari hátt þegar svona aðstæður myndast til þess að draga úr bílaumferð. Það eina sem við höfum núna er að geta sent út tilkynningar og hvatt til þess að fólk hvíli bílinn og nýti vistvæna samgöngumáta,“ segir Svava.

Hún bætir því jafnframt við að heimildir til annarra aðgerða eins og umferðarstýringar séu í umferðarlögum og reglugerð en skortur sé á nánari útfærslu á því hvernig og við hvaða aðstæður skuli beita þessum aðgerðum.

Svava segir mengunarástand sem þetta og áhrif á loftgæði mjög háð veðri. 

„Það gæti auðvitað orðið þannig að við færum ekki oftar yfir þessi klukkustundarheilsuverndarmörk á árinu ef þessar veðuraðstæður skapast ekki. Við erum  náttúrulega alltaf að losa mikla mengun en hún nær að fjúka burt og helst ekki svona yfir borginni eins og hún gerir núna,“ segir Svava. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×