Innlent

Fyrstu rann­sóknir benda til að efnið hafi verið hættu­laust

Atli Ísleifsson skrifar
Mikill viðbúnaður var fyrir utan bandaríska sendiráðið við Engjateig í gær.
Mikill viðbúnaður var fyrir utan bandaríska sendiráðið við Engjateig í gær. Vísir/Vilhelm

Fyrstu niðurstöður greiningar Háskóla Íslands á innihaldi sendingarinnar sem var fjarlægð úr bandaríska sendiráðinu í gær sýna fram á að innihaldið sé hættulaust.

Frá þessu segir í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra. Þar kemur fram að verði breytingar á þeirri niðurstöðu eftir frekari greiningar verði sérstaklega upplýst um það.

Mikill viðbúnaður lögreglu var við sendiráðið Bandaríkjanna við Engjateig í Reykjavík eftir hádegi í gær eftir að tilkynning barst um að starfsfólk hafi handleikið grunsamlega sendingu. Var hópur starfsmanna fluttur á sjúkrahús til skoðunar til öryggis og var sérsveit ríkislögreglustjóra og slökkvilið kallað til vegna sendingarinnar.

Sjá mátti slökkviliðsmenn í hlífðarbúningum sem aðhöfðust við inngang sendiráðsins. Farið hafði eftir sérstöku verklagi og sendingin fjarlægð. 

Kristinn Gilsdorf, upplýsingafulltrúi í sendiráðinu, sagði í samtali við fréttastofu í gær að allir í sendiráðinu hafi haldið ró sinni vegna málsins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×