Innlent

Semja um mót­töku allt að 100 flótta­manna

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Árborgar og Nichole Leigh Mosty við undirritunina.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Árborgar og Nichole Leigh Mosty við undirritunina.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, bæjarstjóri Árborgar og Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs, undirrituðu í dag samning um samræmda móttöku flóttafólks í Árborg. Samningurinn var undirritaður á Selfossi og kveður á um að sveitarfélagið taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 100 flóttamönnum fram til 31. desember 2023.

Samræmd móttaka flóttafólks nær til fólks sem fengið hefur alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hér á landi. Markmiðið er að tryggja flóttafólki samfellda og jafna þjónustu óháð því hvaðan það kemur og í hvaða sveitarfélagi það sest að. Lögð er áhersla á nauðsynlega aðstoð til að vinna úr áföllum og fólk fái tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu, svo sem með atvinnu, samfélagsfræðslu og námi, þ.m.t. íslenskunámi.

Flóttafólkið kemur víða að

Árborg hefur síðastliðin ár verið móttökusveitarfélag fyrir flóttafólk og meðal annars tekið á móti flóttamönnum sem stjórnvöld hafa boðið til landsins, auk þess að vera þátttakendur í tilraunaverkefni um samræmda móttöku flóttafólks sem hófst árið 2021. Flóttafólk sem sest hefur að í Árborg hefur komið frá Afganistan, Íran, Sýrlandi, Úkraínu og Venesúela.

Samkvæmt samningnum sem undirritaður var í dag mun Árborg sem fyrr segir taka á móti allt að 100 flóttamönnum fram til 31. desember 2023, þó aldrei færri en 50 manns. Fjölmenningarsetur er tengiliður milli ríkis og Árborgar og tengir flóttafólk við sveitarfélagið, auk þess að veita starfsfólki þess faglegar leiðbeiningar og ráðgjöf.

Guðmundur Ingi  segir Árborg hafa tekið myndarlega á móti fólki á flótta og búa yfir mikilvægri reynslu af móttöku flóttamanna. „Nýju samningarnir sýna ríkan vilja sveitarfélagsins til að hlúa að flóttafólki í neyð. Ég óska Árborg og íbúum sveitarfélagsins hjartanlega til hamingju.“

Þá segir Fjóla Steindóra að móttaka flóttafólks í  Árborg hafi gengið afar vel en með undirritun samnings við ríkið vilji sveitarfélagið tryggja farsæla móttöku og aðlögun flóttafólks og barna.  „Það er ánægjuefni að samningurinn sé í höfn en hann mun stuðla að samfelldri og jafnri þjónustu en það er mikilvægt að flóttafólk fái jöfn tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu sem fyrst.“


Tengdar fréttir

Tölum út frá staðreyndum

Síðustu vikur hefur mikið verið fjallað um svokallaðan flóttamannavanda í íslensku samfélagi. Ýmsu hefur verið haldið fram, því miður ekki alltaf út frá staðreyndum og því er nauðsynlegt að draga fram nokkrar staðreyndir sem fengnar eru frá alþjóðlegum stofnunum og íslenskum stjórnvöldum.

Fyrstu flótta­mennirnir komnir með sjúkra­tryggingu

Í dag hafa tuttugu fyrstu flóttamennirnir frá Úkraínu fengið íslenska sjúkratryggingu en þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjúkratryggingum. Með tryggingunni fá flóttamennirnir fullan rétt til greiðsluþátttöku ríkisins í nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.

Reykjavík hefur opinn faðm

Hér á Íslandi getum við boðið upp á frið, öryggi og samfélag frjálslyndra gilda sem býður fólk velkomið. Sveitarfélög á Íslandi, með Reykjavík í broddi fylkingar, eiga að opna faðminn fyrir flóttafólki sem hingað kemur.

Móttaka fyrir flóttamenn í Mosfellsbæ

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, var í gær viðstaddur formlega móttöku flóttafólks frá Kenía í Mosfellsbæ. Fólkið er hluti af 25 manna hópi sem kom til landsins 12. september síðastliðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×