Málskostnaður og vextir sem falla á ríkið metið á um 70 milljónir króna Jakob Bjarnar skrifar 10. nóvember 2022 14:58 Þeir Jón Ásgeir Jóhannesson og Tryggvi Jónsson árið 2007. Við upphaf Baugsmálsins svokallaða. Verjandi Jóns Ásgeirs, Gestur Jónsson, segist vona að aldrei komi til þess aftur að nokkur þurfi að eiga í tveggja áratuga málaferlum, með stöðu grunaðs manns, aftur. vísir Gestur Jónasson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar fjárfestis, hefur ritað grein sem hann birtir á Vísi þar sem hann segist vona að aldrei muni það gerast aftur að einstaklingur þurfi að standa í svo langvinnum málarekstri. Orð hans má túlka sem harða gagnrýni á ákæru- og dómsvaldið. „
Nú, þegar upp er staðið eftir rúmlega 20 ára samfelldan málarekstur, er eini refsidómurinn sem eftir stendur á hendur Jóni Ásgeiri sakfelling samkvæmt einum undirlið í 15. lið annarrar ákæru Baugsmálsins sem leiddi til skilorðsbundinnar refsingar,“ segir meðal annars í grein Gests sem bætir því við að ekki sé hún „mikil eftirtekjan í þessu „stærsta efnahagsbrotamáli Íslandssögunnar“. Eins og sjá má eru málsskjölin mikil vöxtum.aðsend Um er að ræða einn þátt í hinum risavaxna Baugsmáli og langvinna. Eins og Vísir greindi frá í gær vísaði Hæstiréttur skattamáli á hendur Jóni Ásgeiri og Tryggva Jónssyni frá héraðsdómi en þegar málið var tekið upp aftur í gær. Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að brotið hefði verið á réttindum þeirra við upphaflega meðferð málsins. Jón Ásgeir um þrítugt þegar málið hófst Sakargiftum á hendur þeim Jóni Ásgeir og Tryggva er vísað frá í því sem varðar þeirra persónulega skattskil. Eftir stendur þá um tvö prósent af upphaflegum sakargiftum. Ríkið þarf að endurgreiða málskostnað og vexti en eftir því sem Vísir kemst næst er þar um að ræða í kringum 70 milljónir. Þá er ótalinn sá kostnaður sem ríkið hefur lagt í Baugsmál frá upphafi, en heimildarmenn Vísis meta það svo að þær upphæðir séu á annan milljarð króna. Þungur tónn er í pistli Gests sem bendir á að Jón Ásgeir sé fæddur 1968 og hafi því verið þrítugur þegar málareksturinn hófst. „Af reynslu get ég sagt að fátt reynist manni erfiðara í lífinu en að vera borinn sökum um refsivert brot. Að meðferð refsimáls á hendur einstaklingi taki meira en tuttugu ár vona ég að gerist aldrei aftur. Ég leyfi mér að trúa því að dómur Hæstaréttar nú sé endir Baugsmálsins,“ skrifar Gestur í pistli sínum. Brotin metin svo óveruleg að þau varða ekki almenn hegningarlög Annar sem tekið hefur til máls af þessu tilefni er Tryggvi Jónsson sem skrifaði stuttan pistil á Facebook-síðu sína í gær. „Niðurstaða Hæstaréttar í dag var að vísa málinu frá héraðsdómi er varðar sakargiftir um röng persónuleg skattskil okkar. Í því felst að við erum sýkn af sakargiftum. Hvað varðar meint brot í störfum mínum fyrir Baug voru þau talin það óveruleg að ekki var talið fela í sér brot á almennum hegningarlögum og var það niðurstaða Hæstaréttar að gera okkur ekki neina refsingu,“ segir Tryggvi meðal annars. Tryggvi bendir á að allur sakarkostnaður þar með talin málsvarnarlaun verjenda í héraði, fyrir Hæstarétti og fyrir Endurupptökudómi, hafi verið felldur á ríkissjóð.
Dómsmál Mannréttindadómstóll Evrópu Skattar og tollar Stjórnsýsla Dómstólar Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Fleiri fréttir Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Sjá meira