Sofnaði værum blundi og setti öryggiskerfið í gang þegar hann vaknaði Hólmfríður Gísladóttir skrifar 7. nóvember 2022 07:02 Í yfirliti lögreglu yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar segir ekkert um það hvers konar fyrirtæki var að ræða. Vísir/Vilhelm Svo virðist sem starfsmenn fyrirtækis í Reykjavík hafi læst viðskiptavin inni þegar þeir lokuðu í gær en viðskiptavinurinn setti öryggiskerfi fyrirtækisins í gang þegar hann vaknaði eftir að hafa sofið værum blundi á staðnum.
Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning frá rekstrarstjóra fyrirtæksins um klukkan 3.30 í nótt, þar sem hann sagði innbrot standa yfir. Sást sá grunaði á öryggismyndavélum. Lögregla fór á vettvang og handtók hinn grunaða á meðan beðið var eftir rekstrarstjóranum. Meintur gerandi kvaðst hafa nýtt sér þjónustu fyrirtækisins um kvöldið og síðan hafa sofnað. Fann lögregla tóm áfengisílát þar sem maðurinn svaf. Þegar rekstrastjórinn kom gekk hann með lögreglu um fasteignina en engar skemmdir fundust né ummerki um innbrot eða þjófnað. Hafi rekstrastjórinn því ekki frammi neinar kröfur og var viðskiptavinurinn því laus allra mála. „Það lítur því út fyrir að starfsmenn fyrirtækisins hafi læst meintan geranda inni á meðan hann svaf værum svefni. Hann síðan vaknað um nóttina, farið á stjá með þeim afleiðingum að öryggiskerfi fyrirtækisins fer í gang,“ segir í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar. Lögregla hafði afskipti af fleiri einstaklingum í hálfannarlegu ástandi, meðal annars einum sem er grunaður um að hafa sparkað í hund.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Spennandi og sögulegar kosningar: Fjórir flokkar berjast fyrir lífi sínu í fallbaráttu Sjá meira