Mörgum finnst þessi tími samt erfiður, það er farið að kólna í veðri, aðeins meira myrkur á morgnana og örlítið erfiðara að koma sér í gang. Hérna eru fimm góð ráð til að hjálpa ykkur að komast þægilega inn í veturinn með góða heilsu í fyrirrúmi.
1. Hreyfum okkur reglulega
Stöðugleiki er besta leiðin til þess að halda hreyfingu inni í okkar daglegu venjum og þess vegna mikilvægt að hreyfa sig reglulega eða lágmark 3x í viku. Við megum ekki gleyma því að heilsan okkar er það dýrmætasta sem við eigum og nauðsynlegt að hlúa vel að henni með reglulegri hreyfingu sem þarf alls ekki að taka langan tíma til að skila árangri.
2. Nærum okkur vel
Næringin skiptir alltaf gríðarlega miklu máli, reynið að borða litríka fæðu, eins hreina og hægt er og fjölbreytta til þess að fá öll þau næringarefni sem líkaminn þarf á að halda. Forðist sykur og unnin matvæli eftir bestu getu eða haldið því allavega í miklu lágmarki. Gefum okkur tíma til þess að borða og njótum þess!
3. Setjum svefninn í forgang
Svefn er undirstaða góðrar heilsu og því mikilvægt að passa vel upp á að ná lágmark 7-8 klst svefni á nóttu. Of lítill svefn getur haft neikvæð áhrif á daglegt líf okkar.
4. Stundum útiveru
Þó farið sé að kólna í veðri þá er alveg ótrúlega hressandi og gott fyrir sálina að fara í góðan göngutúr og anda að sér ferska loftinu, sérstaklega ef við erum inni tímunum saman í vinnu eða skóla.
5. Höfum notalegt heima
Finnum leiðir til að taka myrkrinu fagnandi með því að gera notalegt heima hjá okkur. Gerum þægilega stemningu með kertum og fallegri og notalegri lýsingu, gott að hafa mjúkt teppi í sófanum, förum í heitt bað eða heitan pott og reynum að láta okkur líða vel.
Í lokin langaði mig að deila með ykkur uppáhalds hrákökunni minni en mér finnst æðislegt að eiga hana í frysti og næla mér í smá bita þegar sykurlöngunin hellist yfir mig. Njótið vel!
Fylgið mér endilega á Instagram ef þið viljið hvatningu, hugmyndir að æfingum, uppskriftir og fleira.