Endurkomusigur tryggði Tottenham sæti í 16-liða úrslitum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Pierre-Emile Hojbjerg tryggði Tottenham sigurinn.
Pierre-Emile Hojbjerg tryggði Tottenham sigurinn. Clive Rose/Getty Images

Tottenham snéri taflinu við er liðið heimsótti Marseille í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld í hreinum úrslitaleik um sæti í 16-liða úrslitum. Eftir að hafa lent undir seint í fyrri hálfleik snéru liðsmenn Tottenham leiknum sér í hag og unnu að lokum sterkan 1-2 sigur.

Heimamenn í Marseille höfðu mikla yfirburði í fyrri hálfleik og sóttu stíft að marki Lundúnaliðsins. Vörn gestanna stóð þó vel, en heimamenn náðu þó forystunni með góðu skallamarki frá Chancel Mbemba á annarri mínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Gestirnir mættu þó ákveðnari til leiks í síðari hálfleik og Clement Lenglet jafnaði metin á 54. mínútu eftir fyrirgjöf frá Ivan Perisic.

Bæði lið gerðu sig svo líkleg til að stela sigrinum og það gerðu gestirnir í Tottenham þegar Pierre-Emile Hojbjerg slapp einn í gegn á fimmtu mínútu uppbótartíma.

Niðurstaðan því 1-2 sigur Tottenham sem tryggði sér efsta sæti D-riðils með sigrinum. Liðið endar með 11 stig, einu stigi meira en Frankfurt sem fylgir liðinu áfram í 16-liða úrslit. Marseille endar hins vegar í neðsta sæti riðilsins með sex stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira