Skoðun

Hefur Bjarni Benediktsson ekkert viðskiptavit?

Jón Páll Haraldsson skrifar

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, stefnir á að hækka skatt á áfengi í fríhöfninni um rúm 180%. Sem sagt hann ætlar að færa stóra upphæð frá hægri vasa yfir í vinstri vasa. Hækka tekjur af skatti en minnka hagnað fríhafnarinnar (sem er í eigu ríkisins). Hann mun einnig auka tekjur ÍSAVÍA sem er líka í eigu ríkisins, því leiga fríhafnarinnar miðast við veltu, þannig eru vasar ríkisins orðnir þrír. Sem sagt, auknar tekjur ÍSAVÍA og auknar skatttekjur en minni hagnaður fríhafnarinnar. Til hvers? Er Bjarni kannski viljandi að draga úr afkomu fríhafnarinnar til þess að geta selt hana á lágu verði til einkaaðila? Kannski náðu ekki venslamenn hans að kaupa eins mikið í Íslandsbanka eins og þeir vildu.

Hvað gætu afleiðingar af rúmlega 180% hækkun á gjöldum fríhafnarinnar haft í för með sér? Þann 30. september áttu 50 flugvélar að lenda á Keflavíkurflugvelli. Gefur okkur sem dæmi að 100 manns í hverri vél, hafi keypt tollfrjálsa skammtinn í brottfararlandi, því þau vita að sama vara í Keflavík er mun dýrari þar. Einfalt reikningsdæmi gæfi okkur þá að hver farþegi hafi ca. 5 kg í handfarangri, sinnum 100 sem eru 500 kg og það síðan sinnum 50 sem yrði 2.500 kg. þennan eina dag í handfarangri. Ef við síðan reiknum það yfir allt árið, þá yrðu þetta 912.500 kg af áfengi sem yrði flutt með flugi í handfarangri til landsins. Hvað ætli það komi til með að kosta flugfélögin í auka eldsneyti? Kostnaður sem þyrfti að færast í miðaverð, sem síðan hefur áhrif á vísitölu og skuldir einstaklinga og fyrirtækja á Íslandi. Þetta er krónutöludæmið, síðan kemur útblástursdæmi, þar sem við erum nú þegar í mínus varðandi skuldbindingar okkar vegna loftslagsmála. Á sínum tíma óskuðu Loftleiðir eftir því að það yrði komu fríhöfn í Keflavík til að spara eldsneyti við flugtak. Þá var eldsneyti mun ódýrara og mengun var ekki í myndinni. Það má einnig nefna að upphæðin sem Bjarni þykist ætla að hafa í aukatekjur af þessari hækkun á skatti er svipuð og skattgreiðendum landsins er ætlað að styrkja stjórnmálaflokka landsins. Persónulega tel ég að stjórnmálaflokkar eigi að sjá um sig sjálfir en ekki vera á framfæri skattgreiðeinda.

Höfundur er vínáhugamaður.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×