Ljóst er að gríðarlegt tjón varð á bílaflota margra bílaleiga í aftakaveðrinu á Suðaustur-og Austurlandi á sunnudag. Til að mynda gjöreyðilögðust tuttugu og fimm bílar á planinu við Ferðaþjónustuna Fjalldýrð á Möðrudal þar sem rúmlega sjötíu ferðamenn leituðu skjóls undan veðrinu.
Bergþór Karlsson framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar telur að tjónið hlaupi á tugum milljóna.
„Að minnsta kosti fjórir til fimm bílar leigunnar sem voru á Möðrudalsöræfum ery gjörónýtir og yfir tuttugu bílar minna skemmdir eftir sandfok á sunnudag en þeir voru staðsettir víða á Suðaustur-og Austurlandi,“ segir Bergþór.
Bergþór telur að tjónið lendi að mestu á bílaleigunni en hvert og eitt tilvik verði metið.
„Það er misjafnt hvaða tryggingar ökumenn þessara bíla eru með. Í einhverjum tilvikum keyptu þeir áður sérstaka sandfokstryggingu hjá okkur og þá lendir tjónið alfarið á okkur. En svo eru aðrir sem hafa engar tryggingar. Þetta eru samtöl sem við erum að eiga þessa dagana. Við treystum okkur hins vegar ekki til að rukka hvern og einn sem hefur enga tryggingu um meira en eina milljón króna þó tjónið sé miklu meira í langflestum tilvikum,“ segir Bergþór.
Hann telur að Vegagerðin hefði mátt bregðast fyrr við en hún lokaði vegum þar sem veðurspáin var verst um klukkan tólf á sunnudag.
„Ég hefði viljað sjá lokanirnar fyrr. Svo eru líka lokanir kannski bara með slá um hálfann veginn og ekki virtar. Þær hefðu mátt vera skýrari stundu mer bíl er lagt á veginn og þá kemst enginn framhjá. Við vitum að einhverjir ökumenn fóru áfram þrátt fyrir lokunarpóstanna,“ segir Bergþór.
G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar tekur undir þetta eftir það sem nú hefur komið í ljós.
„Í þessu tilviki hefði verið betra að loka fyrr. En við fórum hins vegar eftir okkar ítrustu starfsreglum við lokanirnar þ.e. þá er mið tekið að veðurspá og veðurhæð. Við hikuðum líka aðeins með að kalla út björgunarsveitir til að manna lokunarpóstanna þennan dag því þær höfðu í svo mörgu að snúast. Það hefði hins vegar átt að manna lokanirnar strax miðað við það sem svo gerðist,“ segir G. Pétur.
Hann segir enn fremur að því miður hafi einhverjir ökumenn virt lokanirnar að vettugi en einhverjir hafi líka komið annars staðar frá.
„Það er ljóst núna að einhverjir ökumenn fóru inn á svæði sem búið var að loka. En það voru líka ökumenn að koma frá vegi að Dettifossi og þar voru ekki lokanir í gildi,“ segir G. Pétur.
Hann segir að eftir þetta atvik verði bætt við lokunarhliðum við veginn frá Dettifossi og Stuðlabergi. Þá verði farið heildstætt yfir það hvar vanti lokunarhlið.
„Ef við þurfum að breyta einhverju verklagi eða gera eitthvað öðruvísi þá gerum við það því hugsanlega mun óveður af þessum toga gerast oftar,“ segir G. Pétur.