Söngvar stuðningsmannanna kostuðu HK hundrað þúsund krónur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. september 2022 13:26 Úr bikarleik Kópavogsliðanna HK og Breiðabliks. vísir/hulda margrét Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ sektaði HK um hundrað þúsund krónur vegna framkomu stuðningsmanna liðsins í garð leikmanns Breiðabliks í leik liðanna í átta liða úrslitum Mjólkurbikars karla í Kórnum 19. ágúst síðastliðinn.
Á fundi aga- og úrskurðarnefndar á þriðjudaginn var skýrsla eftirlitsmanns leiks HK og Breiðabliks tekin fyrir. Að mati nefndarinnar var framkoma stuðningsmanna HK vítaverð. Ákveðið var að sekta félagið en vegna viðbragða og ráðstafana knattspyrnudeildar HK sem lýst var í skýrslunni þótti hundrað þúsund króna sekt hófleg. Fótbolti.net greindi frá því að stuðningsmenn HK hefðu sungið níðsöngva um Damir Muminovic, leikmann Breiðabliks og fyrrverandi leikmann HK. Þá veittust stuðningsmenn HK að systur Ísaks Snæs Þorvaldssonar, leikmanns Breiðabliks, á meðan leik stóð. Eftir leikinn baðst knattspyrnudeild HK afsökunar á framferði stuðningsmanna liðsins. Breiðablik vann leikinn 0-1 en Omar Sowe skoraði sigurmarkið í upphafi seinni hálfleiks. Blikar töpuðu svo fyrir Víkingum, 0-3, í undanúrslitum Mjólkurbikarsins á miðvikudaginn. HK er í 2. sæti Lengjudeildarinnar og getur tryggt sér sæti í Bestu deildinni ef liðið fær stig gegn Fjölni í kvöld. Fjölnismenn eru í 3. sætinu, sjö stigum á eftir HK-ingum þegar þremur umferðum er ólokið.
Mjólkurbikar karla HK Breiðablik Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Sjá meira