Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Breiðablik og Afturelding mætast í úrslitaleik Mjólkurbikars karla í fótbolta á Laugardalsvelli í kvöld. Þjálfari Breiðabliks skilur tal kollega síns hjá Aftureldingu sem segir alla pressu á Blikum í leik kvöldsins en er ekki sammála honum. Íslenski boltinn 11.9.2026 10:02
„Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, segir að það muni kosta mikla vinnu að sjá til þess að völlurinn verði upp á sitt besta fyrir bikarúrslitaleik kvenna í fótbolta á laugardaginn. Aðeins um 17 klukkutímar líða frá fögnuði bikarmeistara karla á vellinum annað kvöld þar til að konurnar hefja þar upphitun daginn eftir. Íslenski boltinn 10.9.2026 15:02
Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ Afturelding tekur á móti FH í stórleik kvöldsins í Olís deild karla í handbolta og reynir um leið að slá hinn fullkomna tón fyrir sögulegan dag fyrir félagið á morgun. Handbolti 10.9.2026 12:00
KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn 2.9.2026 22:15
Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn 21.7.2026 18:45
Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast Víkingar og Blikar mættust tvisvar með nokkurra daga millibili og úrslitin voru mjög ólík. Breiðablik sló topplið Víkinga út úr Mjólkurbikarnum um helgina og strákarnir í Stúkunni ræddu í gær viðtölin sem Víkingar fóru í eftir stórsigur í deildarleiknum fjórum dögum fyrr. Íslenski boltinn 30. júní 2026 10:31
„Við bara fundum ekki nægilega mikinn takt“ „Við ætluðum okkur alla leið og vinna bikarinn í ár, en það bara tókst ekki í dag og við vorum bara ekki nógu góðir. Ég vil óska þeim til hamingju með sigurinn í dag,“ sagði Helgi Guðjónsson, niðurlútur að leik loknum í Kópavoginum í dag. Breiðablik vann þá Víking 3-0 í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Íslenski boltinn 28. júní 2026 17:30
„Harka, hugrekki og massífir“ „Tilfinningin er eins góð og hún getur verið. Þetta var bara ótrúlega góður sigur. Grunngildin voru í lagi, við mættum massífir og planið gekk upp á tíu,“ sagði Viktor Karl Einarsson, fyrirliði Breiðabliks, eftir 3-0 sigur á heimavelli í undanúrslitum Mjólkurbikarsins gegn Víkingum. Íslenski boltinn 28. júní 2026 16:30
Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 3-0 | Blikar í bikarúrslit Breiðablik er komið í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í fyrsta sinn síðan 2018. Varð það ljóst eftir 3-0 sigur gegn Víkingum á Kópavogsvelli í dag. Íslenski boltinn 28. júní 2026 15:50
Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Stórleikur Blika og Víkings í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta er settur á klukkan tvö á sunnudaginn kemur. Stuðningsmenn félaganna eru allt annað en sáttir og hafa nú sent frá sér áskorun til Knattspyrnusambands Íslands og Ríkissjónvarpsins. Íslenski boltinn 22. júní 2026 08:28
Yfirlýsing Fylkis: Biðjast afsökunar og lofa að taka hart á málinu Knattspyrnudeild Fylkis hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún harmar hegðun hluta stuðningsmanna liðsins á leiknum við Gróttu í Árbænum á laugardag, í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla. Íslenski boltinn 15. júní 2026 12:05
Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Grótta hefur sent frá sér yfirlýsingu og farið fram á að hegðun stuðningsmanna Fylkis verði tekin til skoðunar, eftir leik liðanna í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta á laugardaginn. Íslenski boltinn 15. júní 2026 09:26
Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Lengjudeildarlið Fylkis tryggði sér í dag sæti í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta eftir 4-2 heimasigur á Gróttu í framlengdum Lengjudeildarslag í Árbænum. Íslenski boltinn 13. júní 2026 16:40
Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ „Mjög sárt. Við dettum út gegn liði sem er óhætt að segja að sé sterkasta lið landsins í dag,“ sagði Lárus Orri, þjálfari ÍA, svekktur eftir tap í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins gegn Víkingum. Íslenski boltinn 12. júní 2026 23:01
Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ „Drullu erfiður leikur. Myndi segja erfiðasti leikurinn á tímabilinu hingað til,“ sagði Aron Elís Þrándarson, leikmaður Víkings, eftir 1-2 sigur á ÍA í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Íslenski boltinn 12. júní 2026 22:42
Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Það verður risaleikur í undanúrslitum Mjólkurbikars karla og það er líka ljóst að Lengjudeildarlið mun spila í bikarúrslitaleiknum í ár. Íslenski boltinn 12. júní 2026 22:28
Uppgjörið: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Víkingar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta og fylgja þangað Blikum og Mosfellingum sem unnu líka leiki sína í átta liða úrslitum. Íslenski boltinn 12. júní 2026 22:11
Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Breiðablik tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta eftir 3-0 útisigur á Lengjudeildarliði Ægis í Þorlákshöfn í átta liða úrslitum keppninnar. Íslenski boltinn 12. júní 2026 19:22
Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Minning Sigursteins Gíslasonar, Steina Gísla, verður heiðruð fyrir leik ÍA og Víkings í Mjólkurbikar karla í fótbolta í kvöld og raunar á öllum heimaleikjum Skagamanna hér eftir. Íslenski boltinn 12. júní 2026 12:32
Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Magnús Már Einarsson hefur skrifað nokkra kafla í sögu Aftureldingar sem þjálfari liðsins og í kvöld kom hann liðinu í fyrsta sinn í undanúrslit bikarsins. Afturelding lenti 1-0 undir á móti Stjörnunni en sneri leiknum við í seinni hálfleik og vann 3-1. Íslenski boltinn 10. júní 2026 23:31
Birkir Már skorar þegar það er Megavika Hinn 41 árs gamli Birkir Már Sævarsson fór á kostum í kvöld þegar Afturelding komst í undanúrslit bikarsins í fyrsta sinn í sögunni en hann skoraði tvívegis í 3-1 endurkomusigri á Stjörnunni. Fótbolti 10. júní 2026 21:53
„Ég tek fulla ábyrgð“ Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var afar ósáttur eftir 5-0 tap liðsins gegn Fylki í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í Árbænum í dag. Íslenski boltinn 14. maí 2026 17:35
„FH er bara á sinni vegferð“ Heimir Guðjónsson þjálfari Fylkis var ánægður með frammistöðu sinna manna eftir 5-0 sigur á FH í Mjólkurbikar karla í Árbænum í dag. Íslenski boltinn 14. maí 2026 17:29
Ægir sló KA út og bikarmeistararnir flengdir Lengjudeildarlið Ægis vann 2-1 sigur á KA á Akureyri í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í dag. Grótta fleygði bikarmeisturum Vestra úr keppni. Íslenski boltinn 14. maí 2026 15:56
Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Fylkir fagnaði 5-0 sigri gegn FH í sextán liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Með öðrum orðum tók Heimir Guðjónsson sína gömlu lærisveina í bakaríið. Máni Austmann Hilmarsson skoraði þrennu, Dagur Traustason og Hlynur Sævar Jónsson komust einnig á blað. Íslenski boltinn 14. maí 2026 14:18
„Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ „Mér fannst þetta bara sanngjarn sigur Stjörnunnar,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir að liðið féll úr leik í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld. Fótbolti 13. maí 2026 23:57